Þessi grein þarfnasthreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Mögulega er vandamálið við síðuna skráð áWikipedia:Stílviðmið.
Blús ertónlistarstefna sem varð til íþrælahaldinu íBandaríkjunum. Hún er upprunninn frá þrælum á plantekrum í syðstu fylkjum Bandaríkjanna eða „Deep South“ sem var einnig þekkt sembómullarríkin, í byrjuntuttugustu aldar. Svart verkafólk og bómullartínarar fóru að syngja blöndu af trúarlegum söngum, vinnu söngum, hrópum og einföldum ballöðum og kallaðist það blús. Blústónlistin endurspeglaði stöðu svartra bandaríkjamanna eftir að þrælahald var afnumið. Þrælarnir höfðu þróað með sér ákveðinn stíl,kalla og svara, og er það form sem einkennir alla blústónlist.
„I’m a crosscut saw, baby just drag me across your log.
You know I’m a crosscut saw, just drag me across your log.
I’ll cut your wood so easy for you, you can’t help but say, „Hot Dog!““[1]
Í byrjun blússtílsins vorugítar,banjó ogmunnharpa hljóðfærin sem mest voru notuð og fylgdi þeim yfirleittsólósöngvari. Þegar blúsinn varð vinsælli og færðist norðar bættust við fleiri hljóðfæri úrdjassinum eins ogtrompet,básúna,klarinett,píanó ogkontrabassi. Algengasta uppbygginginn í blús er 12 takta blús. Hann notar tólf takta mynstur og er á sama tíma. Hann byrjar á ákveðnum grunntón í 4 töktum, svo fer hann upp um fimmund í 2 takta svo kemur aftur grunntónninn í 4 takta, svo fer hann upp í sjöund í 1 takt og niður í fimmund í 1 takt og svo kemur yfirleitt eitthvað stutt millispil. Blús hefur hægan takt og textinn innheldur oft mikla depurð og líf svartra Bandaríkamanna bæði fyrir og eftir þrælahald. Nafnið dregur líka merkingu sína af því hversu tilfinningaþrungin tónlistin og textarnir geta verið. Áensku er blúsblues og „feeling blue“ þýðir að vera dapur.
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd áspjallsíðunni.
Tónlistarstefnan blús býr yfir einkennum eins og sérstökum textum, bassa línum og hljóðfærum. Blús hefur margar undirstefnur sem hafa verið misvinsælar á mörgum tímabilum 20. aldarinnar. Fyrsta blúslagið sem gefið var út var lagið „Dallas Blues“ meðHart Wand árið1912. Fyrsta upptakan með svörtum bandaríkjamanni var gerð árið1920, það var flutningurMamie Smith á laginu „Crazy Blues“. Það var fyrsta blúslagið sem náði heimsvinsældum. Uppruni blúss er þó talinn ná lengra aftur, alveg að1890. Það eru því miður til fáar heimildir um það vegna mikilskynþáttamismunar innan bandarísks samfélags á þeim tíma. Svörtu fólki bauðst ekki menntun og skólaganga og því gátu þeir ekki skráð neinar heimildir um það sem þeir gerðu.Blind Lemon Jefferson var söngvari og gítarleikari fráTexas. Hann var fyrsti alvöru blússöngvarinn sem tók upp lag í alvöru upptökustúdíói.
Umskiptin sem urðu á blús árið 1920 þegar hann fór að færast norðar og í þéttbýlli svæði höfðu alltaf verið keyrð áfram af efnahagslegum ástæðum, eins ogkreppunni. Fólk fór að flytja frá dreifibýli til þéttbýlis og tónlistin flaut með. Eftirseinni heimstyrjöldina varðrafmagnsblús (e.electric blues) vinsæll í borgum eins ogChicago,Memphis,Detroit ogSt. Louis. Í rafmagnsblús er notaðurrafmagnsgítara,bassa,trommur og stundummunnhörpur. Chicago varð miðpunktur rafmagnsblús og var hann síðar meir kallaður „Chicago blues“.
Árið1949 fæddist ein af undirstefnum blús,ryþmablús. Sú stefna er enn þann dag í dag mjög vinsæl.Muddy Waters ogJimmy Reed urðu vinsælir blús tónlistarmenn, þeir fluttust báðir til Chicago í kreppunni og uppgvötuðu tónlistina. Blús hafði mikil áhrif á popptónlist í Bandaríkjunum ásjötta áratugnum. Í byrjumsjöunda áratugsins voru stefnur sem urðu fyrir áhrifum frá bandarískri blökkumannatónlist eins ogrokki ogsálartónlist orðinn partur af hefðbundinni amerískri popptónlist. Hvítir tónlistarmenn höfðu kynnt tónlistina til víðari áhorfendahóps, bæði í Bandaríkjunum og út fyrir þau. Hins vegar varð blúsinn sem gerði Muddy Waters og fleiri fræga ekki jafn vinsæll áfram. Nýjar tegundir blúsins urðu til og fóru að leiðast út í meira popp, rokk ogblúsrokk.
Síðan árið1980 hefur verið endurvakning á upprunalega blúsinum á meðal ungra amerískra blökkumanna, þá aðallega íJackson íMississippi og á þeim slóðum. Áníunda áratugnum hélt blúsinn áfram bæði í hefðbundnu formi og nýju.
Blús hafði mikil áhrif á tónlist víðsvegar um heiminn. Evrópsk þjóðlagatónlist hafði lítið sem ekkert breyst í gegnum árin áður en að blús fór að hafa áhrif á hana. Blústónlistarstíll (12 takta blús) hefur verið fyrirmynd fyrir margar aðrar stefnur svo sem rokk, djass ogpopp. Áberandi djass-, þjóðlaga- og rokktónlistarflytjendur eins ogLouis Armstrong,Duke Ellington,Miles Davis ogBob Dylan hafa allir flutt þýðingarmikil blúslög. Blúsballöður eins og „Since I Fell For You“ og „Please Send Me Someone to Love“ og fleiri popplög notast við 12 takta formið. Blúsinn á sér margar undirstefnur:
William Christofer Handy, kallaðurfaðir blúsins, fæddist í Alabama og varð hugfanginn af tónlist þar. Hann var einn af áhrifamestu amerísku lagahöfundunum. Árið 1902 ferðaðist hann um Mississippi og fræddist um blústónlist afrískættaðra Bandaríkjamanna. Hann fylgdi ekki alltaf klassískum 12 takta blús heldur prófaði margt nýtt. Hann samdi lög eins og „Long gone John“ og „Memphis blues“.
Bandarísk söngona, leikkona, píanóleikari og dansari. Hún lék í nokkrum myndum á sínum ferli. Hún var fyrsta svarta söngkonan til að gefa út lag, það var lagið „Crazy blues“. Það var fyrsta blúslagið til að ná heimsvinsældum.
Bandarískur söngvari og lagahöfundur, hann var þekktur fyrir að spila rafmagnaðan blús. Hljómsveitinthe Rolling Stones hafa sagt að Reed hafi verið þeim mikill innblástur í sinni tónlist. SöngvarinnElvis Presley söng mörg lög eftir Reed. Jimmy Reed samdi mörg lög, meðal annars: „Shame, shame, shame“ og „Found love“.
Breskur gítarleikari, söngvari og lagahöfundur. Hann hefur verið í hljómsveitunum Derek and the Dominos, Cream, Bluesbrakers og The Yardbirds. Áhrifamikill gítarleikari sem hefur samið lög eins og „Tears in heaven“ og „Layla“.
Bandarískur söngvari, gítarleikari og lagahöfundur. TímaritiðRolling Stone setti hann í 3. sæti yfir bestu gítarleikara allra tíma. Hann er einn áhrifamesti blúsgítarleikari allra tíma. Hann hefur unnið mörg Grammy-verðlaun fyrir lög og plötur.