Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Bern

Hnit:46°56′52.73″N7°26′50.75″A /46.9479806°N 7.4474306°A /46.9479806; 7.4474306
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fyrir kantónuna, sjáBern (kantóna).
Bern
Berne
Miðborgin í Bern afmarkast af slaufu í ánni Aare
Miðborgin í Bern afmarkast af slaufu í ánni Aare
Fáni Bern
Fáni
Skjaldarmerki Bern
Skjaldarmerki
Bern er staðsett í Sviss
Bern
Bern
Staðsetning í Sviss
Hnit:46°56′52.73″N7°26′50.75″A /46.9479806°N 7.4474306°A /46.9479806; 7.4474306
Land Sviss
KantónaBern
Flatarmál
  Samtals51,62 km2
Hæð yfir sjávarmáli

(Bahnhofplatz)
540 m
Hæsti punktur

(Könizberg)
674 m
Lægsti punktur

(Aare)
481 m
Mannfjöldi
 (Desember 2020)[1]
  Samtals134.794
  Þéttleiki2.600/km2
TímabeltiUTC+01:00 (CET)
  SumartímiUTC+02:00 (CEST)
Póstnúmer
3000–3030
Vefsíðawww.bern.ch/enBreyta á Wikidata

Bern er höfuðborgSviss og fimmta stærsta borg landsins með um 135 þúsund íbúa.[1] Bern er einnig höfuðborgkantónunnarBern. Borgin var á16. öld stærsta borgríki norðanAlpa. Sökum þess að miðborgin hefur haldið upprunalegu formi sínu var hún sett áheimsminjaskrá UNESCO árið1983. Íbúarnir eru flestir þýskumælandi.

Lega og lýsing

[breyta |breyta frumkóða]

Bern liggur við ánaAare vestarlega í Sviss og rétt austan viðNeuchatelvatn. Næstu borgir eruBasel til norðurs (95 km),Lausanne til suðvesturs (100 km),Luzern til austurs (110 km) ogZürich til norðausturs (120 km). Aare myndar breiða slaufu í kringum miðborg Bern, sem afmarkar vel gömlu borgina. Innan borgarmarkanna búa 123 þús manns, en á stórborgarsvæðinu rúmlega 350 þús.

Skjaldarmerki

[breyta |breyta frumkóða]

Skjaldarmerki Bernar er svartur björn á gulum fleti en tungan, klærnar og reðurinn eru rauð. Svartur litur bjarnarins táknar varnargetu, guli liturinn hið eðalborna blóð og rauði liturinn blóð feðranna. Björninn sjálfur er táknrænn fyrir heiti borgarinnar og var lögð rík áhersla á að hann sé karlkyns. Merki þetta kom fyrst fram1224 og er notað bæði af borginni og kantónunni Bern.

Orðsifjar

[breyta |breyta frumkóða]

Bern merkir björn. Sagan segir að stofnandi borgarinnar hafi drepið björn á staðnum þar sem hann byggði borgina. En líklegra þykir að hann hafi nefnt borgina eftir ítölsku borginniVeróna, sem hét Bern á þýsku eða Wälschbern. Sömuleiðis kölluði Ítalir borgina Bern Verona.

Saga Bernar

[breyta |breyta frumkóða]
Berchtold V drepur bjarndýrið. Mynd úr Tschachtlan-annálunum

Það var hertoginn Berchtold V af Zähringer-ætt sem stofnaði borgina Bern1191 í stórri slaufu í ánni Aare. En1218 dó Zähringer-ættin hins vegar út og varð Bern þá að hálfgerðri fríborg íþýska ríkinu.Rúdolf I af Habsborg, sem þá var konungur þýska ríkisins (sá fyrsti af Habsborg), staðfesti fríborgarstatusinn en setti þó skatt á borgina. Skattur þessi var mikill þyrnir í augum borgarbúa og reyndu þeir með aðstoð frá Búrgúnd og Savoy að komast undan yfirráðum Habsborgara. Árið1289 réðust Habsborgarar gegn borginni og sigruðu borgarbúa í orrustunni við Schosshalde. Auk skattsins urðu þeir nú að greiða háar skaðabætur.1298 dró aftur til orrustu. Að þessu sinni sameinuðust herir Habsborgara her frá borginniFribourg. Í orrustunni við Dornbühl, rétt við vesturdyr Bernar, sigraði her Bernar. Við sigurinn varð Bern endanlega sjálfstætt borgríki.

Hin svissneska Bern

[breyta |breyta frumkóða]

Árið1323 gerði Bern samning við svissneska bandalagið til að eiga öflugan bandamann í baráttunni við þýska ríkið. Stefna borgarinnar var sú að vinna meira land og auka áhrifin sín. Landvinningar fóru aðallega fram á kostnað Búrgúnd og Habsborgar. Árið1339 var Habsborgurum nóg boðið og sendu her til að stöðva framgang Bernar. Í orrustunni við Laupen sigraði sameiginlegur her frá Bern og Sviss stóran her frá Habsborg og nokkrum bandamönnum. Samningurinn við svissneska bandalagið var endurnýjað1341 en1353 gekk borgin skrefið til fulls og fékk inngöngu í bandalagið. Bern varð þar með áttunda kantónan í Sviss.

Borgríkið Bern

[breyta |breyta frumkóða]
Elsta myndin sem til er af Bern, gerð af Matthäus Merian 1549.

Sem kantóna hélt Bern áfram að vinna landsvæði af nágrannaríkjum. Á15. öld voru landeignir Bernar orðnar svo miklar að talað var um ríkið Bern í stað borgarinnar Bern. Árið1528 fórusiðaskiptin fram í Bern og áhrifasvæðum hennar. Þegar borgin hertók héraðiðVaud viðGenfarvatn1536 var Bern orðið að stærsta borgríki norðan Alpa. Ríkinu stjórnaði borgarráð en í því sátu milli 200 – 300 meðlimir. Forseti ráðsins kallaðist Schultheiss (formaður). Formennirnir voru kosnir til eins eða tveggja ára í senn, stundum lengur. Íbúar áhrifasvæða Bern voru ósáttir við hlutskipti sitt og gerðu endrum og eins uppreisn. En1798 réðustFrakkar inn í Vaud og hertóku héraðið. Þeir réðust einnig inn í önnur héruð Sviss. Þrátt fyrir að borgarráð Bernar gafst upp, ákvað her borgarinnar að berjast gegn ofureflinu. Í orrustunni við Grauholz (Gráaskóg) nálægt Bern sigruðu Frakkar og hertóku í kjölfarið borgina. Orrusta þessi markaði endalok Bernar sem borgríki. Bern missti auk þess flest héruð sín, svo sem Vaud,Aargau og fleiri.

Höfuðborgin Bern

[breyta |breyta frumkóða]

Vínarfundurinn úrskurðaði1815 að Bern skyldi haldast án þeirra héraða sem Frakkar höfðu klipið af. Bern varð því að kantónuhöfuðborg.1831 sagði borgarráðið af sér og fram fóru fyrstu borgarkosningar. Þingið í Sviss hafði fundað á ýmsum stöðum í landinu fram að þessu, til dæmis íAarau og í Luzern. Mikill ágreiningur var innan Sviss að einhver borg yrði gerð að höfuðborg, þar sem engin ein borg skyldi vera mikilvægari en önnur. Því var ákveðið að Sviss skyldi ekki hafa höfuðborg heldur sambandsborg, þar sem þingið og stjórnin kæmu saman. Árið1848 varð Bern fyrir valinu. Svisslendingar kalla Bern ekki höfuðborg heldur sambandsborg en stjórnmálalega séð er Bern höfuðborg Sviss. Borgin kom ekki við sögu í heimstyrjöldunum. Árið1968 fengu konur kosningarétt í borginni og1988 var kosningaaldurinn lækkaður úr 20 árum í 18 ár. Í dag eru 20% íbúa Bernar útlendingar, flestir fráÞýskalandi,Ítalíu ogSpáni. Helstu atvinnuvegir eru stjórnsýsla,iðnaður og ferðamennska. Í Bern er til að mynda hið kunna Toblerone súkkulaði framleitt.

Íþróttir

[breyta |breyta frumkóða]

Aðalknattspyrnufélag borgarinnar er Young Boys, sem ellefu sinnum hefur orðið svissneskur meistari (síðast1986), sex sinnum bikarmeistari (síðast1987) og einu sinni deildarbikarmeistari (1976).

Íshokkífélagið SC Bern er eitt árangursríkasta félag í sinni grein í Sviss. Síðan íshokkídeildin var stofnuð1959 hefur liðið tólf sinnum orðið svissneskur meistari (síðast2010). Meðalaðsókn liðsins á heimavelli er sú mesta íEvrópu. Heimavöllur liðsins var vettvangur HM í íshokkí1971,1990 og2009.

Helstahandboltafélag borgarinnar er BSV Bern, sem þrisvar hefur orðið svissneskur meistari (síðast1985).

Kvennahlaupið í Bern (Schweizer Frauenlauf) er stærsta kvennahlaupið í Mið-Evrópu, en þrettán þúsund þátttakendur hlaupa fimm eða tíu kílómetra. Auk þess er fimmtán kílómetra vegalengd fyrir göngu og norræna göngu (Nordic Walking).

Viðburðir

[breyta |breyta frumkóða]
Gurtenfestival árið 2003

Stærsta tónlistarhátíð borgarinnar er Gurtenfestival. Þeir voru settir á laggirnar1977 og hafa verið haldnir árlega íjúlímánuði síðan. Aðallega er umpopp ogrokk að ræða en einnig er leikiðblús oghip hop. Af þekktum tónlistarmönnum og hljómsveitum sem troðið hafa upp þar má nefnaBilly Idol,Avril Lavigne,James Blunt,Placebo,Earth, Wind & Fire,Oasis,Motörhead,All Saints,Rammstein,Sinead O'Connor og ýmsa aðra.

Karnevalið í Bern er tvíþætt. Það hefst11. nóvember en þá er björninn í bjarnargryfjunni lokaður inni í Käfigturm (gamalt borgarhlið) fyrir vetrarsvefninn. Þremur mánuðum síðar hefst hið eiginlega karneval með því að björninn er vakinn og honum hleypt út á ný. Karneval þetta er þriðja stærsta sinnar tegundar í Sviss, á eftir Basel og Luzern.

Frægustu börn borgarinnar

[breyta |breyta frumkóða]

Vinabæir

[breyta |breyta frumkóða]

Ólíkt öðrum svissneskum borgum hefur borgarráð Bernar ákveðið að viðhalda ekki vinabæjatengslum við aðrar borgir. Þessi ákvörðun var fyrst tekin 1979. Undantekning var þó gerð í sambandi við EM í fótbolta 2008, en þá tengdist Bern formlega vinaböndum við aðrar þátttökuborgir til skamms tíma: Basel, Genf, Zürich og Salzburg í Austurríki. Á hinn bóginn er borgarráð opið fyrir vinabæjatengslum í framtíðinni.

Byggingar og kennileiti

[breyta |breyta frumkóða]
  • Miðborg Bernar liggur að öllu leyti innan í slaufu í ánni Aare. Hún var í heild sinni sett á heimsminjaskrá UNESCO 1983. Flest húsin eru nokkur hundruð ára gömul og eru gerð úr sandsteini. Framhliðarnar eru allar með súlnagöng og mynda lengstu verslunargöng Evrópu með sex kílómetra.
  • Zytgloggeturm (einnigZeitglockenturm) var áður fyrr vesturhlið borgarmúranna í Bern. Það var reist1191, en eftir nokkrar útvíkkanir á borginni, færðist turninn hægt og hægt inn í borgina. Eftir brunann mikla1405 var turninn ekki lengur varðturn, heldur klukkuturn (Zeitglocke). Sett var upp klukknaspil með bjarnarfígúrum, sem spilar á heila tímanum. Klukknaverkið er meistaraverk miðalda. Undir klukkunni er einnig stjörnuklukka sem smíðuð var á15. öld.
  • Bundeshaus er svissneska alþingishúsið og ríkistjórnarhúsið í senn. Elsta húsið var reist185257 og er í dag Bundeshaus West. Sökum plássleysis var nýju húsi bætt við188492 og er í dag Bundeshaus Ost. Miðhúsið, sem er þinghúsið, var reist18941902 og tengir öll húsin saman. Þinghúsið er prýtt með stórum hvolfturni og er þjóðarminnisvarði. Ýmis listaverk skreyta húsin, höggmyndir og styttur.
  • Berner Münster er merkasta kirkja borgarinnar. Byrjað var að reisa hana1421 í gotneskum stíl. En verkið dróst og svo fór að vinnunni lauk ekki fyrr en1893. Turninn er 100,6 metra hár og er hæsti kirkjuturn Sviss. Enn í dag býr turnvörður efst í turninum. Ábyrgð hans fram á miðja20. öld var að melda bruna í borginni.
  • Bärengraben er bjarnargryfjan fræga í borginni. Björninn er skjaldardýr borgarinnar (og kantónunnar). Fyrstu upplýsingar um bjarnargryfju eru frá1441 en núverandi gryfja var lögð1857 og er númer 4 í röðinni. Dýrin voru allnokkur saman í margar aldir. Í dag er aðeins eitt dýr í gryfjunni. Bjarnargryfjan er vinsæl jafnt meðal heimamanna og ferðamanna.
  • Zytgloggeturm
    Zytgloggeturm
  • Sambandshúsið er alþingishús Svisslendinga
    Sambandshúsið er alþingishús Svisslendinga
  • Dómkirkjan í Bern er sú hæsta í Sviss
    Dómkirkjan í Bern er sú hæsta í Sviss
  • Bjarnargryfjan í Bern er ákaflega vinsæl
    Bjarnargryfjan í Bern er ákaflega vinsæl

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 12„Ständige und nichtständige Wohnbevölkerung nach institutionellen Gliederungen, Geburtsort und Staatsangehörigkeit“.STAT-TAB (þýska). Swiss Federal Statistical Office. 31. desember 2020. Sótt 21. september 2021.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistBern.
Hjálendur og ríki með takmarkaða viðurkenningu eruskáletruð
Fullvalda ríki
Ríki með takmarkaða
viðurkenningu
Yfirráðasvæði
Bretland
Krúnunýlendur og
yfirráðasvæði
Annað
  • 1 Venjulega talin tilAsíu landfræðilega, en oft talin til Evrópulanda af menningarlegum og sögulegum ástæðum
  • 2 Borgríki
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Bern&oldid=1933759
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp