Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Belgrad

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Belgrad
Београд (serbneska)
Belgrað
Miðborg Belgrad
Miðborg Belgrad
Fáni Belgrad
Fáni
Skjaldarmerki Belgrad
Skjaldarmerki
Belgrad er staðsett í Serbíu
Belgrad
Belgrad
Hnit:44°49′04″N20°27′25″A / 44.81778°N 20.45694°A /44.81778; 20.45694
Land Serbía
Flatarmál
 • Samtals389,12 km2
Hæð yfir sjávarmáli
117 m
Mannfjöldi
 (2022)
 • Samtals1.197.714
 • Þéttleiki3.078/km2
TímabeltiUTC+1 (CET)
 • SumartímiUTC+2 (CEST)
Póstnúmer
11000
Svæðisnúmer+381(0)11
ISO 3166 kóðiRS-00
Vefsíðabeograd.rs

Belgrad eðaBelgrað (serbneska:Београд meðkyrillísku letri eðaBeograd meðlatínuletri) er stærsta borg oghöfuðborgSerbíu. Við borgina eruármótDónár ogSava. Borgin er ein af þeim elstu íEvrópu og á rætur sínar að rekja allt til um 6000 f.Kr.[1] Í henni búa um 1.200.000 manns, hún er stærsta borg fyrrum Júgóslavíu og fjórða stærsta borg Suð-Austur Evrópu á eftirIstanbul,Aþenu ogBúkarest.

Á því svæði sem Belgrad er í dag hafðist forsögulegur þjóðflokkurVinča við. Borgin var stofnuð á tímumKelta ogRómarveldis en á7. öld tókuSlavar að byggja borgina. Serbía tilheyrðiAustur-rómverska keisaradæminu, var undirFrönkum,Búlgörum,Ungverjum og Serbum áður enOttómanveldið lagði Belgrad undir sig árið1521. Belgrad var höfuðborg sjálfstæðs ríkis Serba frá árinu1403 til1427 en féll þá aftur til Ottómana. Serbía hlaut sjálfstæði árið1841. Á20. öld var Belgrad höfuðborgKonungsríkis Serba, Króata og Slóvena á árunum1918-29, 1929-41Konungsríkisins Júgóslavíu og loks1945-92Sósíalíska sambandslýðveldisins Júgóslavíu.

Belgrad hefur töluverðasjálfsstjórn innan Serbíu og erborgarstjórnin þónokkuð valdamikil.[2] Borginni er skipt í 17 smærri hverfiseiningar sem hvert fyrir sig hefur sérstakt hverfisráð. Borgin nær yfir 3,6% af landssvæði Serbíu og u.þ.b. 21% fólksfjöldans (aðKosovo frátöldu) býr innan borgarmarkanna.

Landafræði

[breyta |breyta frumkóða]

Belgrad er í um 117m hæð yfir sjávarmáli við ármót tveggja stórra áa Dónár og þverár hennar Sava.

Tilvitnanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Discover Belgrade“. Opinber heimasíða Belgrad.
  2. „Heimasíða borgarstjórnar Belgrad“. Opinber heimasíða Belgrad.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistBelgrad.
  Þessi landafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Belgrad&oldid=1903584
Flokkar:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp