Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Belgía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konungsríkið Belgía
Koninkrijk België(hollenska)
Royaume de Belgique(franska)
Königreich Belgien(þýska)
Fáni BelgíuSkjaldarmerki Belgíu
FániSkjaldarmerki
Kjörorð:
Eendracht maakt macht(hollenska)
L'union fait la force(franska)
Einigkeit macht stark(þýska)
Einingu fylgir styrkur
Þjóðsöngur:
Brabançonne
Staðsetning Belgíu
HöfuðborgBrussel
Opinbert tungumálhollenska,franska ogþýska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn
KonungurFilippus
ForsætisráðherraBart De Wever
SjálfstæðifráHollandi
  Yfirlýst4. október1830 
  Viðurkennt19. apríl1839 
Evrópusambandsaðild25. mars1957
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)

30.689 km²
0,71
Mannfjöldi
  Samtals (2020)
  Þéttleiki byggðar
22. sæti
11.492.641
376/km²
VLF (KMJ)áætl.2020
  Samtals575,808 millj.dala (36. sæti)
  Á mann50.114 dalir (18. sæti)
VÞL (2019)Hækkun 0.919 (17. sæti)
Gjaldmiðillevra (€)
TímabeltiCET
Þjóðarlén.be
Landsnúmer+32

Belgía (hollenska:België;franska:Belgique;þýska:Belgien) erkonungsríki íVestur-Evrópu sem á landamæri aðHollandi,Þýskalandi,Lúxemborg ogFrakklandi. Auk þess liggur strönd Belgíu aðNorðursjó. Belgía liggur á mörkum germönsku og rómönsku Evrópu og skiptist sjálf á milli þessara menningarheima, þar sem í norðurhluta landsins,Flæmingjalandi (Vlaanderen), er töluð hollenska, en í syðri hlutanum,Vallóníu (Wallonie) er töluð franska. Þýska er töluð í austurhluta landsins.Brussel, hin tvítyngda höfuðborg landsins, liggur í Flandri, nálægt mörkum að Vallóníu. Belgía er ein af stofnþjóðumEvrópusambandsins og eru höfuðstöðvar þess í Brussel. Evrópskar höfuðstöðvarNATÓ eru einnig staðsettar í landinu ogEFTA samtökin eru með stórt útibú þar. Í Belgíu búa tæplega 11,5 milljónir manna á um 30 þús km2 svæði.

Heiti

[breyta |breyta frumkóða]

Heitið Belgía er runnið undan rifjumJúlíusar Caesars, sem hertók landið á 1. öld f.Kr., en hann kallaði nyrstu héruð GallíuGallia Belgica eftir keltneska þjóðflokknum Belgae. Heitið hvarf þó á miðöldum en kom fram aftur1790 þegar Belgía var sjálfstætt ríki í nokkra mánuði. Það hét þá États-unis de Belgique (Sameinuðu belgísku löndin). Eftir skamma samveru með Hollandi frá1815-1830 varð Belgía sjálfstætt konungsríki. Landið tók sér heitið Royaume de Belgique (konungsríkið Belgía) en það er enn opinbert heiti landsins í dag.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Stærsti hluti nútíma Belgíu var fyrr hlutiRómaveldis, en það var Júlíus Caesar sem hertók landið 57-51 f.Kr. Belgía var skattland Rómverja, kallað Gallia Belgica, en höfuðborgin varReims (í Frakklandi í dag). Eftir það var landið hluti af frankaríkinu mikla semKarlamagnús setti saman síðla á 9. öld. Eftir fráfall hans skiptist ríkið í þrennt 843 og lentuNiðurlönd í miðríkinu, Lóþaringíu. Þegar því var hins vegar skipt milli franska ríkisins ogþýska ríkisins 855, lentu þau í þýska ríkinu. Þar var hins vegar engin ríkisheild, heldur stjórnuðu greifar og furstar löndunum. Niðurlöndum var stjórnað af greifanum frá héraðinu Hollandi, hertoganum frá Geldern og hertoganum frá Brabant. Auk þess af biskupnum fráUtrecht. Það var hertoginn frá Búrgúnd sem sameinaði löndin. Á þessum tíma voru borgir eins og Bruges, Gent og Antwerpen meðal ríkustu borga Evrópu. Eftir að Karl hinn hugrakki, hertogi Búrgúndar, lést í orrustunni viðNancy1477, erfði María dóttir hans öll Niðurlönd. Hún missti móðurlandið (Búrgúnd) til Frakklands, en hélt Niðurlöndin eftir. Eiginmaður hennar var Maximilian frá Habsborg og stjórnuðu þau Niðurlöndum frá Brussel. Með andláti Maríu og Maximilians erfði Habsborg Niðurlönd, en þau erfðust til spænsku línu Habsborgar1556.

Sjálfstæðisstríð

[breyta |breyta frumkóða]

Þar semSpánverjar ríktu með harðri hendi á Niðurlöndum hófst uppreisn íbúa svæðisins1568. Niðurlöndum var skipt í 17 héruð og skiptust þau í andstæða hópa.1581 lýstu norðurhéruðin yfir sjálfstæði, en suðurhéruðin, að miklu leyti núverandi Belgía, héldu að mestu tryggð við Spánverja. Þó lentu ýmsar belgískar borgir illilega í stríðinu. Til að mynda féll Antwerpen tvisvar og var hún rænd og rupluð. Stríðinu lauk ekki fyrr en með friðarsamningunum í Vestfalíu, samfara lokum30 ára stríðsins. Spánverjar viðurkenndu sjálfstæði Hollands, en Belgía var enn eign Spánar. Í ófriði við Frakka missti spænska Belgía borgir eins ogDunkerque,Lille ogArras til Frakklands. Við friðarsamningaspænska erfðastríðsins1713-14 misstu Spánverjar Belgíu tilAusturríkis. Reyndar var Belgía á þessum tíma orðið nær sjálfstætt ríki, enda var keisarasambandið við Austurríki aðeins lauslegt. En þegarJósef II keisari setti ný og strangari lög um Belgíu1790, gerðu belgísku héruðin uppreisn og lýstu yfir sjálfstæði. Austurríkismönnum tókst þó að hertaka landið á sama ári.

1794 hertók franskur byltingarher Niðurlönd öll. Meðan Hollandi var breytt í Batavíska lýðveldið, var Belgía innlimuð Frakklandi. Þar með lauk yfirráðum Habsborgara endanlega á Niðurlöndum. Frakkar umbyltu landinu nánast. Bannað var að tala hollensku í Brabant og Flandri. Aðeins mátti tala frönsku. Efnahagurinn hrundi nánast, en bannað var að selja iðnvörur nema til Frakklands. Kaþólska kirkjan var ofsótt, biskupsdæmin lögð niður og kirkjur vanhelgaðar. Ástand þetta varaði allt til1814, erNapoleon var sigraður og settur í útlegð á eyjunaElbu. Þá voru Frakkar hraktir úr landi og frönsk lög afnumin. En Napoleon strauk frá Elbu aðeins ári síðar, safnaði að sér her og varð einvaldur á ný.18. júní1815 var síðasta stórorrusta hans háð við smábæinnWaterloo rétt sunnan við Brussel. Þar beið hann ósigur gegn sameinuðum herjumEnglendinga ogPrússa. ÁVínarfundinum var ákveðið að Holland, Belgía og Lúxemborg skyldu sameinast í eitt konungsríki. Fyrsti konungur þess ríkis varðVilhjálmur I af Óraníu.

Belgíska uppreisnin

[breyta |breyta frumkóða]
Uppreisnin í Belgíu hófst í Brussel 1830. Málverk eftir Egide Charles Gustave Wappers.

Þótt Belgar væru ánægðir með að losna við yfirráð Frakka, voru þeir óánægðir með Hollendinga. Ástæðan var einföld. Þeim fannst Hollendingar líta á sig sem annars flokks þegna. Belgar voru enn kaþólskir, en Hollendingar kalvínistar og reformeraðir. Belgía var iðnvæddara land en Hollendingar notfærðu sér tækni þeirra og skatta. Að lokum töluðu margir Belgar frönsku, meðan aðalmálið í Hollandi var hollenska. Íjúlí1830 sauð upp úr. Í Brussel hófst bylting sem breiddist út til annarra borga. Krafan var að losa sig frá Hollandi. Íseptember var bráðabirgðastjórn mynduð og4. október 1830 lýsti stjórnin yfir sjálfstæði Belgíu í ráðhúsinu í Brussel. Í ráðstefnu sem stórveldi í Evrópu héldu íLondon í lok ársins, var Belgía viðurkennt sem sjálfstætt ríki. Vilhjálmur I, konungur Niðurlanda, viðurkenndi nýja ríkið hins vegar ekki fyrr en1839. Þingið ákvað einnig að Belgía skyldi vera konungsríki. Hins vegar neitaði aðall landsins að taka við konungdóminum. Það tók heilt ár að finna hentugan aðila. Að lokum varð þýski aðalsmaðurinn Leópold af ætt Sachsen-Coburg-Gotha fyrir valinu. Hann var krýndur21. júlí1831 og er þessi dagur þjóðhátíðardagur Belga í dag. 1839 splittaðist hertogadæmið Lúxemborg í tvennt. Það hafði tekið þátt í belgísku uppreisninni 1830 og var hluti Belgíu. En 1839 klofnaði héraðið. Vesturhlutinn varð eftir í Belgíu (og heitir Lúxemborg í dag), en austurhlutinn varð að sjálfstæðu ríki (heitir einnig Lúxemborg).

Nýlenduveldi og heimstyrjöld

[breyta |breyta frumkóða]
Vinnuþrælkun í Kongó

Með nýju sjálfstæði færðistiðnvæðingin í aukana. Nýjar kolanámur spruttu upp og lagt varjárnbrautarnet þvert yfir landið og til nágrannalandanna.1889 varð Belgía að nýlenduveldi er Leópold II konungur eignaðist formlegaKongó íAfríku. Hann hafði þó löngu áður braskað með landið og íbúana. Leópold notaði íbúa Kongósvæðisins vægðarlaust og hófst mikil rányrkja í landinu. Eitthvað um 10 milljónir Kongóbúar létu lífið í þrælabúðunum. Þetta olli þvílíkri hneikslan áVesturlöndum að Leópold konungur neyddist til að afsala sér landið1908, sem eftirleiðis var stjórnað af ríkisstjórninni og hlaut heitiðBelgíska Kongó. Leópold lést ári síðar. Íágúst1914 réðust Þjóðverjar inn í Belgíu til að komast betur inn í Frakkland. En Belgar tóku á móti þeim með þvílíkum krafti, m.a. viðorrustuna um Liège, að Þjóðverjar voru stöðvaðir í heilan mánuð. En um síðir náðu Þjóðverjar meirihluta landsins á sitt vald. Stjórnin flúði tilLe Havre í Frakklandi. Þjóðverjar tóku fólk af lífi og eyðilögðu byggingar fyrir hið vasklega viðnám og sem hefnd fyrir miklar andspyrnuhreyfingar. Margar borgir skemmdust mikið. 40 þús Belgar voru sendir til Þýskalands til að vinna í hergagnaiðnaðinum. Tugþúsundir annarra voru hnepptir í vinnuþrælkun. Í stríðslok, er Þjóðverjar yfirgáfu landið1918, eignaðist Belgía héraðið í kringum borgirnarEupen ogMalmedy, sem áður tilheyrði Þýskalandi. Þar með mynduðust núverandi landamæri Belgíu. Einnig tók belgíski herinn þátt í hersetuRuhr-héraðsins sem hluti stríðsskaðabóta Þjóðverja.

Heimstyrjöldin síðari

[breyta |breyta frumkóða]
Belgísk vopn daginn eftir uppgjöf Belga fyrir Þjóðverjum 1940

10. maí1940 réðust Þjóðverjar aftur inn í Belgíu. Að nýju veittu Belgar mikið viðnám, en fengu ekki við ráðið. Brussel féll17. maí. Stjórnin fór þá til Englands og starfaði í London. Þjóðverjar hertóku landið á 18 dögum. Leópold III konungur neitaði hins vegar að yfirgefa landið. Hann var að lokum handtekinn af Þjóðverjum og töldu sumir að hann hafi veitt þeim haldbærar upplýsingar og aðstoð. Leópold átti fund með sjálfumHitler í bæríska bænumBerchtesgaden ínóvember 1940. Landstjóri nasista í Belgíu varð Alexander von Falkenhausen. Strax var byrjað á því að ofsækjagyðinga og senda þá úr landi. Íseptember1944 hrökkluðust nasistar úr Belgíu, en þá höfðu bandamenn ráðist inn íNormandí nokkru áður. Stjórnin sneri heim frá London og neyddi Leópold III konung til að segja af sér. Hann var þó settur í embætti á ný1946. Í lok árs 1944 sóttu Þjóðverjar fram á vesturvígstöðvunum í síðasta sinn. Þeir komust inn yfir Ardennafjöll og sóttu inn í Belgíu. Framsókn þessi var þó skammlíf, enda mættu Þjóðverjar þar ofjörlum sínum.

Nútíma Belgía

[breyta |breyta frumkóða]

Eftir stríð var belgíska stjórnin enn óánægð með Leópold konung.1949 efndi hún til þjóðaratkvæðagreiðslu um persónu hans. 72% þjóðarinnar kaus með konungi og sat hann því áfram í embætti. En þetta leysti miklar erjur úr læðingi og við lá borgarastríði.1951 sá Leópold sitt vænsta og afþakkaði. Við konungdóminn tók sonur hans Baldvin. Eftir stríð hófst mikil efnahagsuppsveifla í landinu. Þeir gengu íkola- og stálbandalag Evrópu1952 og voru stofnmeðlimirEvrópubandalagsins1957 meðRómarsáttmálanum.1967 settiNATO upp aðalstöðvar sínar í Brussel. Síðan þá hafa margar aðrar alþjóðlegar stofnanir reist aðalstöðvar sínar í borginni, þar á meðal aðalskrifstofurEvrópusambandsins. Því er Brussel oft nefnd höfuðborg Evrópu.1960 hófust uppþot í nýlendunni Kongó, sem endaði með sjálfstæði landsins30. júní. Þegar uppþotin héldu áfram í júlí, sendi Belgía herlið til landsins í trássi við stjórnina í Kongó. Í borgarastyrjöldinni sem á eftir fylgdi neyddust Belgar til að draga sig til baka. Heima fyrir var tungumálavandinn ákaflega erfiður ljár. Það var ekki fyrr en1967 að hollensk útgáfa af stjórnarskrá landsins varð til. Hún hafði alltaf verið á frönsku fram að þessu. Hollenskan og franskan skiptu landinu einnig upp í tvær þjóðir og tvo menningarheima.1964 var landinu formlega skipt upp í fjögur tungumálasvæði: Frönsku, hollensku, þýsku og tvítyngda höfuðborg. Eftir þetta hafa nokkrar ríkisbreytingar verið gerðar.

  • 1977 var landinu skipt í þrjú menningarsvæði: Frönskumælandi, hollenskumælandi og þýskumælandi. Skiptingin var þó mestmegnis menningarleg, en svæðin fengu m.a. að útvarpa á eigin tungumálum.
  • 1980 hlutu menningarsvæðin aukna sjálfstjórn í félagsmálum og heilbrigðismálum. Auk þess voru tvö stór héruð mynduð: Vallónía (frönskumælandi) og Flæmingjaland (hollenskumælandi).
  • 1988-89 var Brüssel (höfuðborgarsvæðið) bætt við sem þriðja stóra héraðið í Belgíu. Hin tvö héruðin hlutu enn aukna sjálfstjórn, m.a. í menntamálum.
  • 1993 var Belgíu breytt í sambandsland. Héruðin hlutu aukið sjálfræði í fjárhagsmálum. Auk þess var Brabant skipt upp í Flæmska Brabant og Vallónska Brabant.
  • 2001 hlutu héruðin enn aukna sjálfstjórn, m.a. í landbúnaði, fiskveiðum, erlendum viðskiptum, fjármálum. Kosningalögum var einnig breytt.
Elio di Rupo varð forsætisráðherra Belgíu eftir lengstu stjórnarkreppu í sögu Vesturlanda

Eftir kosningar2010 tókst ekki að mynda nýja ríkisstjórn og var landið tæknilega stjórnlaust í hálft annað ár. Stjórnarkreppan leystist ekki fyrr en ídesember2011 erElio Di Rupo tókst að mynda nýja stjórn. Stjórnarkreppan stóð yfir í 541 dag, sem er heimsmet.Charles Michel tók við stjórnartaumunum árið 2014.

  • 2011 var lögum enn breytt, enda var enn mikil spenna í landinu þrátt fyrir allar þessar ríkisbreytingar. Nú er þingið ekki kosið almennum kosningum, heldur samanstendur það af fulltrúm vallóna og flæmingja sem kosnir eru í hvoru héraði fyrir sig. Smásvæðið Brussel-Halle-Vilvoorde var skipt upp, en það hafði verið bitbein lengi í landinu sökum tungumála. Héruðin fá enn aukið fjárhagsfrelsi.

Þrátt fyrir allar þessar breytingar eru vandamálin í landinu ekki leyst. Ekki er útilokað að Belgía leysist upp í tvö ríki í framtíðinni.

Landfræði

[breyta |breyta frumkóða]

Belgía liggur við sunnanverðanNorðursjó, þó að strandlengja landsins sé ekki nema rúmlega 70 km löng. Belgía á landamæri að fjórum öðrum löndum:

LandLengd landamæraAth.
Frakkland620 kmTil suðurs
Holland450 kmTil norðurs
Þýskaland167 kmTil austurs
Lúxemborg148 kmTil suðausturs

Belgía er ákaflega flatt land. Meirihluti landsins er láglent undirlendi. Í norðurhluta landsins eru jafnvel nokkrir staðir sem liggja neðan sjávarmáls, en þeir eru talsvert færri og minni en t.d. í Hollandi. Syðst er lítill fjallgarður,Ardennafjöll, en hæsti tindurinn þar, Signal de Botrange, nær aðeins 694 metra hæð. Skipta má landinu í þrjá landfræðilega hluta: ströndina, miðundirlendið og Ardennafjöll. Fjölda áa renna um landið. Þeirra helstu eruMaas ogSchelde.

Stærsta borg Belgíu er Antwerpen með um 466 þús íbúa og er hún að sama skapi langstærsta hafnarborg landsins. Athyglisvert er að höfuðborgin Brussel er eingöngu fimmta stærsta borg landsins með rúmlega 160 þús íbúa. Á hinn bóginn búa um milljón manns á stórborgarsvæði Brussel og er hún að þessu leyti langstærsta borg landsins. Stærstu borgir í Belgíu:

RöðBorgÍbúarHéraðMenningarsvæði
1Antwerpen466 þúsAntwerpenFlæmingjaland
2Gent235 þúsAustur-FlæmingjalandFlæmingjaland
3Charleroi201 þúsHainautVallónía
4Liège188 þúsLiègeVallónía
5Brussel163 þúsHöfuðborgarsvæðið
6Brugge117 þúsVestur-FlæmingjalandFlæmingjaland
7Schaerbeek113 þúsHöfuðborgarsvæðið
8Namur107 þúsNamurVallónía
9Anderlecht97 þúsHöfuðborgarsvæðið
10Leuven91 þúsFlæmska-BrabantFlæmingjaland
11Mons91 þúsHainautVallónía

Ár og vötn

[breyta |breyta frumkóða]

Tvö stórfljót renna um Belgíu frá suðri til norðurs: Schelde og Maas. Bæði eiga árnar upptök sín í Frakklandi og bæði fljóta þau inn yfir landamæri Hollands og þaðan í Norðursjó. Stærstu ár Belgíu innanlands:

RöðFljótLengd innanlandsRennur í
1Schelde200 kmNorðursjó
2Maas183 kmNorðursjó
3Ourthe165 kmMaas
4Lys109 kmSchelde
5Sambre105 kmMaas
6Senne103 kmDijle
7Lesse89 kmMaas
8Dijle86 kmRupel
9Yser50 kmNorðursjó

Nokkrir skipaskurðir eru í Belgíu. Stærsti skurðurinn er Albert-skurðurinn, en hann er 129 km langur. Skurðurinn tengir árnar Maas og Schelde milli borganna Liège og Antwerpen. Hæðarmunurinn er 56 m og þurfa skip því að fara í gegnum fimm skipastiga. Brussel-Schelde-skurðurinn er 28 km langur og tengir höfuðborgina við fljótið Schelde, og þaðan áfram til sjávar. Skurðurinn var vígður1561 og er einn allra elsti skipaskurður Evrópu sem enn er í notkun.

Ardennafjöll eru að mestu skógi vaxin

Stöðuvötn í Belgíu eru fá og lítil. Stærsta vatnið er Lacs de L'Eau d'Heure í héraðinu Namur nálægt frönsku landamærunum. Það er þó ekki nema rúmlega 6 km2 að stærð. Vatnið er uppistöðulón sem myndaðist við stíflugerð á 8. áratugnum.

Meginhluti Belgíu er flatlendi. Bara í suðaustri er landið hæðótt. Þar eruArdennafjöll sem teygja sig frá Belgíu til Lúxemborgar og að einhverju leyti til Frakklands. Hæsta fjallið er Signal de Botrange sem er 694 metra hátt. Það liggur í þeim hluta Ardennafjöllum sem kallast Haute Fagnes nálægt þýsku landamærunum. Fjallið er nær allt skógi vaxið, en efst er útvarpsturn og veitingahús. Fjögur önnur fjöll í Ardennafjöllum (innan Belgíu) ná 600 metra hæð.

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]

Í Belgíu er þingbundin konungstjórn. Lögþingið samanstendur af tveimur deildum, ásamt konungi. Framkvæmdarvaldið samanstendur af 15 manna ríkisstjórn og konungi. Æðsti maður ríkisstjórnarinnar er forsætisráðherra landsins. Síðan2025 erBart De Wever forsætisráðherra. Konungurinn ber titilinn konungur Belga (Roi des Belges), ekki konungur Belgíu.

Listi konunga Belgíu síðan konungsríkið var stofnað 1830:

RöðKonungurTímabilAth.
1Leópold I1831 -1865
2Leópold II1865 -1909Sonur Leópolds I
3Albert I1909 -1934Bróðursonur Leópolds II
4Leópold III1934 -1951Sonur Alberts I
5Baldvin1951 -1993Sonur Leópolds III
6Albert II1993 -2013Bróðir Baldvins
7Filippus2013 - Situr ennSonur Alberts II

Stjórnmál í Belgíu eru nokkuð flókin. Þar ber helst að nefna ágreining þjóðflokkanna tveggja í landinu, vallóna og flæmingja. Ágreiningsefnin eru ýmis:

  • Eftirheimstyrjöldina síðari var tekist á um Leópold III konung, en hann var sakaður um svik við Þjóðverja meðan Belgía var hersetin. Til að leysa þennan ágreining sagði Leópold af sér og við tók sonur hans, Baldvin.
  • Síðan í byrjun variðnaður og efnahagur miklu meiri í Vallóníu (frönskumælandi hlutanum). En ásjöunda áratugnum snerist dæmið við. Efnahagsundrið í Flæmingjalandi hefur orsakað mikla spennu í landinu, ekki síst er flæmskir stjórnmálamenn reyndu að stýra uppgangingum til suðurs til Vallóníu.
Gulgræna svæðið er Flæmingjaland, brúna svæðið er Vallónía, bláa svæðið er þýskt menningarsvæði. Fyrir miðju er höfuðborgarsvæðið.
  • 1962 voru tungumálamörkin fastlögð. Landinu var skipt upp í tvo aðal tungumálahluta, en höfuðborgin Brussel var tvítyngd. Þetta olli enn meiri spennu í landinu, sérstaklega vegna þess að eiginleg tungumálamörkin í landinu eru óskýr. Í miðhéruðunum búa ýmist vallónar eða flæmingjar í röngu tungumálasvæði. Brussel er sér fyrirbæri. Höfuðborgin var áður fyrr nær eingöngu hollenskumælandi, en eftir 1962 fóru æ fleiri að tala frönsku þar. Nú er svo komið að meirihlutinn þar talar frönsku. Nokkrar endurbætur á þessu kerfi hafa aðeins flækt málin enn frekar. Franska er í mikilli sókn í umhverfi Brussel.

Vallónar krefjast þess að viðhalda Belgíu sem eitt ríki. Meðal flæmingja heyrist sú krafa æ oftar að kljúfa sig úr ríkinu og mynda eigið land. Síðan2007 hafa stjórnmálamenn átt í miklum erfiðleikum að samrýma allar þessar kröfur.

Þjóðfáni og skjaldarmerki

[breyta |breyta frumkóða]

Þjóðfáni Belgíu samanstendur af þremur lóðréttum röndum: Svart, gult og rautt. Þegar Brabant lýsti yfir sjálfstæði1789 var þetta fáninn sem tekinn var upp, nema hvað rendurnar voru láréttar. Lýðveldi þetta var brotið á bak aftur. En1830 var konungsríkið Belgía stofnað. Fáninn var tekinn í notkun aftur23. janúar1831, en rendurnar látnar vera lóðréttar. Til hliðsjónar var franski fáninn hafður, en hann samanstendur einnig af þremur lóðréttum röndum. Litirnir hafa hins vegar ekkert með þýska fánann að gera. Það er algjör tilviljun að fánarnir eru nauðalíkir.Belgíska skjaldarmerkið er til í tvennu formi, þ.e. eitt stórt og eitt minna. Bæði sýna þau gullna ljón héraðsins Brabant, en það var aðalsmerki hertoganna af Brabant fyrr á öldum. Merkið var tekið upp í núverandi formi17. mars1817.

Belgía er með her sem skiptist í fjóra hluta: Landher, sjóher, lofther og sjúkraher. Stærstur þessara herja er landherinn með tæpa 25 þús hermenn. Loftherinn ræður yfir 72flugvélum og 31þyrlu. Sjóherinn lýtur sameiginlegri stjórnBenelúxlanda. Herskylda var afnumin í landinu2006.

Stjórnsýsluumdæmi

[breyta |breyta frumkóða]

Belgíu er skipt upp í tvö landfræðileg svæði: Vallóníu (frönskumælandi) í suðri og Flæmingjalandi eða Flandri (hollenskumælandi) í norðri. Hvort svæði um sig er skipt upp í fimm héruð eða fylki.

Flæmsku héruðin:

HéraðHollenskt heitiFranskt heitiStærð í km2ÍbúarHöfuðborg
AntwerpenAntwerpenAnvers2.8671,7 milljónirAntwerpen
LimburgLimburgLimbourg2.422826 þúsHasselt
Austur-FlæmingjalandOost-VlaanderenFlandre-Orientale2.9821,4 milljónirGent
Flæmska BrabantVlaams-BrabantBrabant flamand2.1061 milljónLeuven
Vestur-FlæmingjalandWest-VlaanderenFlandre-Occidentale3.1251,1 milljónBrugge

Vallónsku héruðin:

HéraðFranskt heitiHollenskt heitiStærð í km2ÍbúarHöfuðborg
HainautHainautHenegouwen3.7861,3 milljónirMons
LiègeLiègeLuik3.8621 milljónLiège
LúxemborgLuxembourgLuxemburg4.443264 þúsArlon
NamurNamurNamen3.666472 þúsNamur
Vallónska BrabantBrabant wallonWaals-Brabant1.093373 þúsWavre

Það athugist að héraðið Lúxemborg er ekki það sama og furstadæmið Lúxemborg, sem er sjálfstætt ríki. Héraðið í kringum Brussel telst ekki til neins héraðs. Það er heldur ekki vallónskt eða flæmst, heldur myndar höfuðborgarsvæðið sér svæði.

Íbúar

[breyta |breyta frumkóða]

Íbúar í Belgíu eru 10,8 milljónir á 30 þús km2 svæði. Þéttleikinn í landinu er því 355 íbúar á km2. Venjulega hafa íbúarnir verið flokkaðir eftir tungumálum. Í Belgíu eru þrjú opinber tungumál: Hollenska, franska og þýska. Flæmingjar (hollenskumælandi) eru um 60% íbúanna. Vallónar og frönskumælandi íbúar eru um 40%. Lengst í austri er lítill minnihlutahópur við þýsku landamærin sem talar þýsku. Höfuðborgin Brussel er tvítyngd (franska og hollenska).

Um 75% Belga eru kaþólskir. 1% tilheyra sameinuðu mótmælendakirkjunni. Um 4% tilheyraíslam. 20% eru ekki skráðir í trúflokka. Belgíska stjórnin viðurkennir eingöngu 6 trúflokka: Anglísku kirkjuna, íslam,gyðingdóm,kaþólsku kirkjuna,rétttrúnaðarkirkjuna, sameinuðu mótmælendakirkjuna og fríhugsuðir (þ.e.húmanistar). Gyðingar í Belgíu eru 20 þús talsins.

Menning

[breyta |breyta frumkóða]

Belgísk málaralist er síst lakari en sú hollenska, sérstaklega 17. öldin. Meðal þekktustu málara þess tíma má nefnaAdriaen Brouwer,Peter Paul Rubens,Anthonis van Dyck, Teniers feðgar ogCornelis de Vos.

Teiknimyndasögur

[breyta |breyta frumkóða]

Teiknimyndasögur frá Belgíu eru og hafa verið ákaflega vinsælar. Víða í landinu sjást þriggja mynda teiknimyndir (strips), í verslunum, í bókabúðum og á göngugötum. Margir belgískir teiknimyndahöfundar hafa náð heimsfrægð. Listinn hér að neðan er ekki tæmandi:

Í Belgíu er hægt að stunda nám í teiknimyndalistinni í listaháskólum.

Franskar eru í raun belgísk uppfinning

Belgísk matargerð er ekki einsleit, enda landið klofið í tvo menningarheima. Þekktasta matarafurð landsins er án efafranskar kartöflur, en það er misskilningur margra að þær séu ættaðar frá Frakklandi. Víða í Belgíu eru lítil veitingahús á hjólum (Friture á frönsku) sem selja franskar og aðrar djúpsteiktar vörur. Venjan er að ef borða skuli franskar heima fyrir, þá eru þær keyptar úti og teknar heitar heim. Belgískur bjór er víða þekktur, en landið framleiðir um 500 tegundir. Af þekktum ostum má nefna Limburger og Passendaele, sem gjarnan eru borðaðir sem eftirréttur. Belgískt konfekt er heimsþekkt. Það er selt í hundruðum tegunda og njóta mikilla vinsælda.

Í Antwerpen vorusumarólympíuleikarnir haldnir 1920, þeir fyrstu eftir heimstyrjöldina fyrri. Af þekktum belgískum íþróttamönnum má nefna tenniskonurnarKim Clijsters ogJustine Henin (báðar nr. 1 á heimslistanum á sínum tíma), markmanninn íknattspyrnuJean-Marie Pfaff oghjólreiðamanninnEddy Merckx, sem margir telja besta hjólreiðakappa allra tíma. Í Spa-Francorchamps er keppt íFormúlu 1.

Dags.HelgidagurAth.
1. janúarNýársdagur
Breytilegt að voriPáskarSunnudagur og mánudagur
1. maíVerkalýðsdagurinnFête du travail á frönsku
BreytilegtUppstigningardagur
BreytilegtHvítasunnaSunnudagur og mánudagur
21. júlíÞjóðhátíðardagurVígsludagur fyrsta konungs landsins, Leópolds I
15. ágústHimnaför MaríuMæðradagur í Antwerpen
1. nóvemberAllraheilagradagur
VopnahlésdagurVopnahlé eftir heimstyrjldina fyrri
25. og26. desemberJól

Auk þessara helgidaga eru nokkrir aðrir sem aðeins eru haldnir í einu menningarsvæði. Þeirra á meðal eru:

Dags.HelgidagurAth.
11. júlíDagur flæmskrar menningar
27. septemberDagur franskrar menningar
15. nóvemberDagur þýskrar menningar
15. nóvemberKonungsdagurinnTil heiðurs konungsfjölskyldunni

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Tengill

[breyta |breyta frumkóða]
Lönd íEvrópu
Norður-Evrópa
Austur-Evrópa
Mið-Evrópa
Vestur-Evrópa
Suðaustur-Evrópa
Suður-Evrópa
Undir yfirráðum annarra ríkja:Álandseyjar ·Færeyjar ·Gíbraltar ·Guernsey ·Jersey ·Mön ·Svalbarði
1 Oft talin landfræðilega til Asíu en skilgreind sem Evrópulönd af menningarlegum ástæðum.
AðildarríkiEvrópusambandsins (27)
Evrópufáninn
Evrópufáninn
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Belgía&oldid=1899499
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp