Belís er land á austurströndMið-Ameríku viðKaríbahaf, meðlandamæri aðMexíkó í norðvestri ogGvatemala í vestri og suðri. Það nær yfir 22.970 ferkílómetra og íbúar eru rúmlega 400.000. Meginlandshluti landsins er um 290 km langur og 110 km breiður. Belís er fámennasta og dreifbýlasta land Mið-Ameríku, en fólksfjölgun (áætluð 1,87% á ári 2018) er þar önnur mest í heimshlutanum og með því mesta á Vesturlöndum.
MenningMaja náði til Belís milli 1500 f.Kr. og 300 e.Kr. og blómstraði til um 1200. Fyrstu Evrópumennirnir komu árið 1502 þegarKristófer Kólumbus sigldi inn íHondúrasflóa. Landkönnun og landnám Evrópumanna hófust árið 1638. Á þeim tíma gerðu bæðiSpánn ogBretland tilkall til landsins þar til Bretar sigruðu Spánverja íorrustunni um St. George's Caye undan ströndum landsins 1798. NýlendanBreska Hondúras var stofnuð 1840 og varð krúnunýlenda árið 1862. Landið fékk sjálfstæði1981.
Nafn landsins, og fyrrihöfuðborgarinnarBelísborgar, er dregið afBelísá. Í Belís þrífst fjölbreytt menning og mörg tungumál. Enska er opinbert tungumál landsins enbelískreólska er þjóðtunga þriðjungs íbúa.Spænska er annað mest talaða mál landsins. Innan Mið-Ameríku hefur Belís mikla sérstöðu og er skyldara ríkjum Karíbahafsins sem einnig eru fyrrum nýlendur Breta.Höfuðborg Belís erBelmópan en Belís er þéttbýlasta borgin og helsta hafnarborg landsins.
Elsta ritaða heimildin sem getur um orðið „Belís“ er dagbók dóminíkanamunksins José Delgado frá 1677.[1] Delgado skráði nöfn ánna sem hann fór yfir á ferð sinni norður eftir strönd Karíbahafsins sem Rio Soyte, Rio Xibum og Rio Balis. Nöfn ánna, sem samsvaraSittee-á,Sibun-á ogBelísá, fékk hann frá túlki sínum.[1] Stungið hefur verið upp á því að „Balis“ sé Majaorðiðbelix (eðabeliz) sem merkir drullugt vatn.[1] Nýlega hefur verið stungið upp á því að það gæti komið frá setningunnibel Itza eða „vegurinn tilItza“.[2]
Á 3. áratug 19. aldar komst sú alþýðuskýring á nafninu í umferð meðal yfirstétta Belís að heitið væri spænsk útgáfa nafns breska sjóræningjans Peter Wallace, sem hafi stofnað nýlendu við ósa Belísár 1638.[3] Engar heimildir eru til um stofnun sjóræningjanýlendu á því svæði og jafnvel Wallace sjálfur er talinn vera skáldsagnapersóna.[1][2] Sagnfræðingar og rithöfundar hafa komið með ýmsar aðrar skýringar á uppruna heitisins í gegnum tíðina, meðal annars að það sé úr afrískum málum eða frönsku.[1]
Umdæmin skiptast aftur í31 kjördæmi. Staðbundin stjórnvöld í Belís eru á fjórum stjórnsýslustigum: borgarráð, bæjarráð, þorpsráð og byggðaráð. Tvö borgarráð (Belísborg ogBelmópan) og sjö bæjarráð ná yfir þéttbýlisstaði landsins, meðan þorps- og byggðaráð eru yfir dreifbýli[6]
Vinsælustu íþróttagreinarnar í Belís eruknattspyrna,körfuknattleikur,blak oghjólreiðar. Árviss víðavangskeppni í hjólreiðum, sem fram fer um páskahelgina, er kunnasti íþróttaviðburður landsins og laðar að sér fjölda útlendra keppenda.
Þótt knattspyrna sé sú íþrótt sem flestir landsmenn fylgjast með hefur Belís ekki unnið nein stórafrek á fótboltasviðinu. Landsliðið komst í úrslitakeppni Norður- og Miðameríkukeppninnar árið 2013 í fyrsta og eina sinn, en tapaði öllum sínum leikjum. Sama ár hafnaði liðið í fjórða sæti á Mið-Ameríkuleikunum sem er langbesti árangur landsins í keppninni.
Hondúras sendi fyrst íþróttafólk til keppni áÓlympíuleikunum á leikunum íMexíkóborg 1968 og hefur tekið þátt í öllum leikum frá því íLos Angeles 1984. Enginn íþróttamaður frá Belís hefur enn komist á verðlaunapall á leikunum.