Bath reis í dölum árinnarAvon við náttúrulegahveri, þar semRómverjar byggðualmenningsbaðhús ogmusteri sem gáfu borginni þáverandi nafn hennarAquae Sulis. Hverir þessir eru þeir einustu á Bretlandi.Játgeir Englandskonungur var krýndur ídómkirkjunni í Bath árið973. Vegna heilsulindanna varð Bath vinsæll orlofsstaður á georgíska tímabílinu sem leiddi til mikils vaxtar borgarinnar. Þá voru byggð mörg hús ígeorgískum stíl.
Bath var skráð áheimsminjaskrá UNESCO árið1987. Í borginni eru mörg leikhús, minjasöfn og aðrir menningarstaðir sem hafa hjálpað til að gera hana að ferðamannastað með yfir milljón gistinótta ferðamanna, auk þess heimsækja 3,8 milljónir gesta borgina í dagsferðum á hverju ári. Þar eru tveirháskólar, auk margra grunnskóla og framhaldsskóla. Stór hluti íbúa borgarinnar starfar í þjónustugeiranum.
Fornleifauppgröftur á svæðinu hefur leitt í ljós að Keltar töldu aðalvatnsból rómverska baðhúsins vera helgidóm og staðurinn var tileinkaður gyðjunni Sulis. Rómverjar kölluðu hanaMínervu en nafnið Sulis var notað áfram eftir hernám Rómverja. Af því var dregið rómverska nafns staðarins,Aquae Sulis, sem þýðir „vötn Sulisar“. Skilaboð til gyðjunnar, sem rispuð voru á málmplötur, svokallaðar „formælingatöflur“ (e.curse tablets), hafa verið endurheimt úr Lindinni helgu. Þessi skilaboð voru skrifuð álatínu og formæltu þeim sem gerðu eitthvað á hlut skrifarans. Ef fötum einhvers var til dæmis stolið í baðhúsi gat hann skrifað nöfn grunaðra manna á töflu sem gyðjan Sulis Mínerva las síðan.
Musterið var reist á árunum 60–70 e.Kr. og baðhúsin voru byggð upp smátt og smátt á næstu þremur öldum. Á meðanhernám Rómverja á Stóra-Bretlandi stóð yfir voru eikarstólpar reknir niður í jörðina sem undirstöður, hugsanlega að boðiClaudíusar keisara, og gerðu þeir musterið stöðugt. Umhverfis lindina var reist óreglulega lagað steinhús sem var klætt meðblýi. Á1. öld var reist yfir lindina braggalaga timburbygging og þar inni voru bæði köld og heit böð. Virkisveggir voru umhverfis borgina, mögulega hlaðnir á2. öld. Eftir brotthvarf Rómverja á fyrsta áratug4. aldar hnignaði böðunum og loks fylltust þau af sandi og hurfu.Annáll Engilsaxa segir að böðin hafi horfið á5. öld.
Bath getur verið staðurinn þar semorrustan við Mons Badonicus var háð (um 500 e.Kr.), þar semArthur konungur er talinn hafa sigraðSaxana, en þetta er umdeilt. Annáll Engilsaxa segir að Bath kom að tilheyra Engilsöxunum árið577 eftirorrustuna við Deorham.Engilsaxarnir kölluðu staðinnBaðum,Baðan eðaBaðon, hvert þýðir „við baðið“ og þaðan er núverandi nafn borgarinnar. Árið675 byggðiOsric konungur afHwicce klaustur í Bath og hugsanlega notaði virkisveggina sem verndun.Offa af Mersíu tók stjórn á þessu klaustri árið781 og endurbyggði kirkjuna sem var tileinkuðPetrus. Fyrir8. öld var götumynstur Rómverja horfið og Bath kom í eigu konungs aftur þegarAlfreð mikli breyti borginni og gerði suðausturhluta hennar að klaustri.
Vilhjálmur 2. gaf borgina konunglegum lækniJóni af Tours sem varð síðar biskup af Wells og ábóti af Bath árið1088. Seinna voru ný böð byggð umhverfis lindirnar þrjár.
Í15. öld féll klaustrið í Bath í niðurníðslu og þurfti að laga kirkjuna.Oliver King biskupinn af Bath og Wells ákvað árið1500 að endurbyggja kirkjuna en á minna stærð. Nýja kirkjan var kláruð aðeins nokkur ár áður enHinrik 8. bindi enda á príorklaustrið. Klaustrið fór í eyði fyrr en að það var endurreist sem sóknarkirkjan áElísabetartímabílinu. Bath fékk opinbera stöðu sem borg árið1590 fráElísabetu 1.
Á tímaensku borgarstyrjöldarinnar varorrustan við Landsdowne háð við norðurhluta staðarins5. júlí1643.Thomas Guidott var efna- og læknisfræðingur sem flutti til Bath þegar hann útskrifaði fráOxford-háskólanum, þar sem hann opnaði læknastofu árið1668. Hann kom að hafa áhuga á læknandi eiginleika vatnsins og árið1676 skrifaði hannA discourse of Bathe, and the hot waters there. Also, Some Enquiries into the Nature of the water. Þetta gerði læknandi eiginleika vatsnsins velþekkta víða um landið og bráðum byrjaðiaðallinn að koma þangað til að baða sig.
Nokkrir hlutar borgarinnar voru þróaðir áStuarttímabílinu. Útþensla borgarinnar fór áfram ágeorgíska tímabílinu, sem stafaði af því að fleira og fleira fólk var að heimsækja heilsulindirnar og það þurfti gistingu. Arkitektarnir John Wood eldri og John Wood yngri sonur hans gáfu borginni nýjar götur og samar framhliðar sem lét í það skína að þær væru hallarlegar og í klassískum stíl. Mikið afBath-steininum sem var notað í byggingu í gegnum borgina var grafið úr kalksteinsnámu íCombe Down ogBathampton Down. Námurnar voru í eiguRalph Allen (1694–1764). Til þess að auglýsa gæði kalksteins gerðu Allen og John Wood samning um að byggja hús úr kalksteini upp í sveit á milli borgarinnar og námunnar. Hann bætti og stækkaðipóstþjónustuna á Vestur-Englandi sem hann hafði samning um í 40 ár. Allen var kosinn borgarstjóri árið1742.