Tilbeiðsla vitringanna eftirPeter Paul Rubens er dæmi um barokklistaverk.
Barokk er nafn yfirlistastefnu ogtímabilið sem stefnan einkenndi. Stefnan einkenndist af miklu skrauti, flúri og þungri tilfinningu. Barokk með léttri tilfinningu er yfirleitt kallaðrókokó. Stefnuna má rekja tilRómar í kringum1600 en þaðan breiddist hún út umEvrópu.
Ítónlist er barokk samheiti yfir bæði barokk og rokkokó. Barokktónlist einkennist af miklu flúri, trillum og flóknum tónavafningi. Ein aðalástæða þess að ekki er greint milli barokks og rokkokó í tónlist er að flytjendur barokktónlistar hafa mikið frelsi,nóturnar sýna aðeins byggingu lagsins en svo eiga flytjendur að spinna í skraut og flúr í tónlistina sem gerir hana misþunga eftir flytjendum[heimild vantar].Keðjulaglínur ogkontrapunktar voru algengar á þessu tímabili (þó misvinsælar eftir tónskáldum) og á bestu bæjum var samin keðjulaglína með þremur eða fjórum upphafsstöðum. Barokktónsmíðar eru gjarnan á formisónata,konserta,kantata ogóratoría.Óperur urðu til á barokktímanum.