Bandaríkin (eðaBandaríki Norður-Ameríku,skammstafaðBNA) erusambandslýðveldi sem er næststærstaríkiNorður-Ameríku aðflatarmáli (9,83 milljónir km²) og jafnframt það fjölmennasta með yfir 333 milljónir íbúa (árið 2021). Þau eru ennfremur fjórða stærsta land heims og það þriðja fjölmennasta. Þau teygja sig milliAtlantshafs ogKyrrahafs og eiga landamæri aðKanada í norðri ogMexíkó í suðri. Bandaríkin samanstanda af50 fylkjum sem njóta nokkurs sjálfræðis í eigin efnum og hafa eigin löggjöf sem þó má ekki stangast á viðstjórnarskrá Bandaríkjanna. Auk sambandsríkjanna hafa Bandaríkin lögsögu yfir ýmsum hjálendum víða um heim.
Bandaríkin rekja uppruna sinn tilsjálfstæðisyfirlýsingarinnar frá 4. júlí 1776 þegar þrettánbreskarnýlendur lýstu yfir eigin frelsi og sjálfstæði frá Breska heimsveldinu. Nýlendurnar höfðu betur íFrelsisstríði Bandaríkjanna en það var fyrsta nýlendustríðið þar sem nýlendan hafði betur en herraþjóðin. Nýlendurnar samþykktu sameiginlega stjórnarskrá íPhiladelphiu þann 17. september 1787. Stjórnarskráin gerði nýlendurnar þrettán að einu lýðveldi.
Á 20. öldinni tóku Bandaríkin forystu í heiminum hvað varðarefnahagsleg,pólitísk,hernaðarleg ogmenningarleg áhrif. Bandaríska hagkerfið er það stærsta í heimi enverg landsframleiðsla Bandaríkjanna árið 2006 var 13 billjónirbandaríkjadala, það er að segja um það bil fjórðungur af vergri landframleiðslu alls heimsins.Evrópusambandið er stærra hagkerfi en Bandaríkin en er ekki ein þjóð.
Á ensku nefnast Bandaríkinthe United States of America, skammstafað USA eða U.S.A., eðathe United States, skammstafað US eða U.S. Áður fyrr var heitið í fleirtölu, en nú er algengast að fara með það eins og það væri eintöluorð. Á ensku er sömuleiðis algengt að nota orðinAmerica („Ameríka“) ogAmerican („Ameríkani“) sem samheiti yfir Bandaríkin og Bandaríkjamenn, þótt það geti líka átt við önnur löndAmeríku.[1]
Elsta dæmið um notkun heitisins „Bandaríki Ameríku“ (the United States of America) er í bréfi semStephen Moylan skrifaðiJoseph Reed sem var aðstoðarmaður George Washington 2. janúar 1776, þar sem Moylan óskaði eftir því að fá fullt umboð Bandaríkja Ameríku á Spáni til að óska eftir aðstoð í Frelsisstríðinu.[2][3][4] Elsta dæmið um þetta heiti á prenti er í dagblaðinuThe Virginia Gazette 6. apríl 1776.[5]
Í öðru uppkastinu aðSambandsgreinunum semJohn Dickinson skrifaði og lauk við ekki síðar en 17. júní 1776 stendur að nafn sambandsins skuli vera Bandaríki Ameríku.[6] Í júní sama ár skrifaðiThomas Jefferson orðin „Bandaríki Ameríku“ (The United States of America) með hástöfum efst á upprunalegt uppkast aðSjálfstæðisyfirlýsingunni.[6] Ekki er ljóst hvort það var eftir að Dickinson hafði skrifað sitt uppkast, eða áður.[6]
Á íslensku heitir ríkið Bandaríkin (fleirtala með greini), en líka er algengt að nota lengra heitið „Bandaríki Norður-Ameríku“ og skammstöfunina BNA eða B.N.A. Orðin „bandarískur“ og „Bandaríkjamaður“ eru dregin af því. Til eru dæmi um notkun heitisins „Bandaríki Ameríku“ og samkvæmt ríkjaheitalista Árnastofnunar er það eina samheitið sem gefið er upp við „Bandaríkin“.[7] „Bandaríki Norður-Ameríku“ er hins vegar miklu mun algengari orðmynd á íslensku, hugsanlega vegna þess að hún er þreföld líkt ogUnited States of America. Heitið „Ameríkani“ og óformlega styttingin „Kani“ er stundum notað á íslensku yfir Bandaríkjamenn.
Fyrstu íbúarNorður-Ameríku komu fráAsíu fyrir um það bil 12 þúsund árum yfirBering-landbrúna, þar sem nú erBeringssund á milliSíberíu ogAlaska. Áætlað er að á bilinu tvær til níu milljónirfrumbyggja (indíána) hafi búið á því svæði sem nú er Bandaríkin, þegarEvrópubúar komu þangað fyrst. Evrópubúarnir báru með sér sjúkdóma á borð viðbólusótt, sem frumbyggjarnir höfðu ekki kynnst áður og höfðu enga mótstöðu gegn; þeim fækkaði því mjög upp frá því. Þróuðustu samfélög þessara frumbyggja var að finna meðalAnazasi-þjóðarinnar í suðvestri og Woodland-indíánanna, sem byggðuCahokia, borg sem stóð nálægt þeim stað þar sem nú erSt. Louis; þar bjuggu 40.000 manns þegar mest var í kringum 1200 f.Kr.
Norrænir menn komu til Norður-Ameríku í kringum árið 1000 e.Kr. en þeir settust ekki að til frambúðar. Það var ekki fyrr en með leiðöngrumKristófers Kólumbusar árið 1492 sem Evrópumenn fóru að senda þangað könnunarleiðangra og landnema.
Þá hófst umfangsmikið landnámBreta á austurströndinni. Landnemarnir voru að mestu látnir afskiptalausir af móðurlandinu fyrst um sinn eða fram að sigri Breta íFrakka- og indíánastríðinu en niðurstaða þess varð sú, aðFrakkar gáfu eftirKanada og svæðið í kringumVötnin miklu. Þá fóru Bretar að innheimta skatta af 13 nýlendum sínum vestanhafs. Þetta þótti mörgum íbúum nýlendnanna ósanngjarnt þar sem þeim var neitað um að hafa málsvara íbreska þinginu. Spennan á milli Breta og landnemanna jókst þangað til að út braust stríð,Frelsisstríð Bandaríkjanna, sem stóð frá 1776 til 1783.
Árið 1776 klufu hinar þrettán nýlendur sig frá Bretlandi og stofnuðu Bandaríkin, fyrstasambandslýðveldi heimsins, með útgáfuSjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna. Upphaflega var um að ræða laustengt bandalag sjálfstæðra ríkja. Miklar deilur spruttu á milli þeirra sem vildu halda því þannig og þeirra sem vildu sjá sterkari alríkisstjórn. Hinir síðarnefndu höfðu sigur meðStjórnarskrá Bandaríkjanna sem tók gildi árið 1789.
Mikill skortur á vinnuafli háði hinu nýja landi frá upphafi og víða nýttu menn sérþrælahald innfluttraAfríkubúa sem ódýrt vinnuafl, sérstaklega í suðurríkjunum. Um miðja 19. öld hafði myndast djúp gjá á milli norðurs og suðurs hvað varðaði réttindi ríkja og útvíkkun þrælahalds. Norðurríkin voru mótfallin þrælahaldi en suðurríkin álitu það nauðsynlegt og vildu taka það upp á þeim svæðum sem ekki tilheyrðu neinu ríki enn. Ágreiningurinn leiddi að lokum til þess að sjö suðurríki sögðu sig úr Bandaríkjunum og stofnuðuSambandsríki Ameríku. Þau ríki sem eftir voru innan Bandaríkjanna gátu ekki sætt sig við það ogborgarastyrjöld, hið svokallaðaÞrælastríð, braust út. Fjögur ríki til viðbótar gengu til liðs við Suðurríkin eftir að stríðið hófst. Meðan á því stóð gafAbraham Lincoln út yfirlýsingu þess efnis að gefa skyldi öllum þrælum í Suðurríkjunum frelsi en því var ekki að fullu hrint í framkvæmd fyrr en eftir sigur norðanmanna 1865, upplausn Suðurríkjasambandsins og gildistöku þrettánda viðauka stjórnarskrárinnar. Borgarastríðið útkljáði þá spurningu hvort einstökum ríkjum væri heimilt að segja sig úr Bandaríkjunum og er það einnig álitið vera sá punktur í sögunni þar sem völd alríkisstjórnarinnar urðu víðtækari en völd fylkjanna.
Á19. öld bættust mörg ný fylki við hin þrettán upphaflegu eftir því sem landið stækkaði til vesturs. Í byrjun 19. aldar börðust Bandaríkjamenn og Kanadabúar við Breta, fyrrverandi nýlenduherra sína, íStríðinu 1812. Þegar Texas var innlimað í Bandaríkin árið 1845 eftir að hafa verið sjálfstætt ríki í tíu ár, olli það ólgu á meðal ráðamanna í Mexíkó. Í kjölfarið brast ástríð á milli landanna sem stóð yfir frá 1846 til 1848. Þessu stríði lauk formlega með friðarsamningi, sem kenndur er viðGuadalupe Hidalgo og urðu mexíkósk stjórnvöld að afsala sér stórum hluta yfirráðasvæðis síns, nánar tiltekið ríkjunum í norðri. Þessi innlimun landsvæða í Bandaríkin, hin svokölluðu Suðvesturríki, eruKalifornía,Nevada ogUtah auk stórra landsvæða sem falla undirNýju-Mexíkó,Colorado,Arizona ogWyoming. Vaxandi fólksfjöldi í austrinu og sívaxandi straumur innflytjenda frá Evrópu hvatti landnema til þess að leita vestur og ryðja hinum amerísku indíánum úr vegi í leiðinni. Á sumum svæðum hafði fjöldi þeirra dregist mjög saman vegna sjúkdóma en á öðrum svæðum voru þeir fluttir til með valdi. Útþensla Bandaríkjanna átti sér ekki aðeins stað á meginlandi Norður-Ameríku heldur komust þau yfirPúertó Ríkó,Gvam ogFilippseyjar með sigri íSpænsk-bandaríska stríðinu. Filipseyjar hlutu sjálfstæði árið1946.
Kreppan mikla reið yfir Bandaríkin á árunum 1929 til 1941 og var mikið áfall. Að auki tók landið þátt í bæðifyrri ogseinni heimsstyrjöldinni meðBandamönnum í bæði skiptin. Í seinna stríðinu urðu Bandaríkin fyrsta og eina þjóðin til þess að hafa beittkjarnorkuvopnum í stríði. Eftir stríðið stóðu Bandaríkin ogSovétríkin eftir sem einurisaveldi heimsins og háðu hið hugmyndafræðilega „Kalda stríð“ og skiptu heiminum niður í áhrifasvæði. ÍVíetnam ogKóreu voru þó háð „heit stríð“ á sömu forsendu — að berjast gegn útbreiðslukommúnisma.
Hæðarkort af fylkjum Bandaríkjanna.Skóglendi í Bandaríkjunum árið 2011
Bandaríkin eru þriðja eða fjórða stærsta land heims miðað viðheildarflatarmál.Rússland ogKanada eru stærri en það veltur á skilgreiningu hvortKína sé það einnig. 48 fylki Bandaríkjanna eru samtengd en tvö nýjustu fylkin eru staðsett nokkuð langt frá hinum. Það eruAlaska sem liggur að Kanada í vestri ogHawaii sem ereyjaklasi í suðvesturátt af meginlandi Bandaríkjanna.
Landsvæði Bandaríkjanna er afar fjölbreytt. Á austurströndinni eru stórar sléttur ogsumargrænir skógar sem ná langt inn í land.Appalachiafjöllin skilja austurstöndina fráVötnunum miklu og gresjunum í Miðvestrinu.Mississippi- ogMissourifljót mynda saman fjórða lengsta fljótakerfi heims en þau renna að mestu frá norðri til suðurs í gegn um mitt landið.Slétturnar miklu teygja sig til vesturs þar tilKlettafjöll taka við. Klettafjöllin eru fjallgarður sem nær suður til Nýju-Mexíkó og stendur hæst í um 4.300 m (14.000 fet) í Colorado. Á vesturströndinni er að finna háa fjallgarða en einnigeyðimerkur á borð viðMojave-eyðimörkina. Hæsti tindur Bandaríkjanna (og Norður-Ameríku) erDenali í Alaska en hann er 6.194 m. Virkeldfjöll er að finna í Alaska, Hawaii og Washingtonfylki. ÍYellowstone-þjóðgarðinum er gríðarstór megineldstöð sem er sú stærsta í Norður-Ameríku. En 59 svæði hafa verið sett í flokkþjóðgarða í Bandaríkjunum
Þriðjungur Bandaríkjanna erskógi vaxinn. Þetta er svipað hlutfall og var árið 1920 en 2/3 þeirra skóga sem voru um 1600.[8]
Bandaríkin erusambandsríki 50fylkja, aukalríkisumdæmisins Columbia,fimm yfirráðasvæða og nokkurra óbyggðraeyja.[9][10][11] Bandaríkin eru elsta sambandsríki heims. Þau erusambandslýðveldi sem býr viðfulltrúalýðræði þar sem vald meirihlutans er takmarkað af vernd réttinda minnihlutans sem er tryggð meðlögum.[12] Í bandaríska sambandskerfinu deilist fullveldi landsins á tvö stjórnsýslustig: alríkisstig og fylkisstig. Innan hvers fylkis eru svo sýslur og sveitastjórnir. Yfirráðasvæði Bandaríkjanna heyra undir alríkisstjórnina.
Stjórnarskrá Bandaríkjanna er æðsta lagaheimild landsins. Þar er kveðið á um stjórnskipan, ábyrgð alríkisstjórnarinnar og samband hennar við fylkisstjórnirnar. Stjórnarskránni hefur verið breytt 27 sinnum[13] Fyrstu 10 breytingarnar (Réttindaskrá Bandaríkjanna) ogfjórtánda breytingin mynda grundvöll einstaklingsréttinda Bandaríkjamanna. Öll lög og reglugerðir heyra undireftirlit dómstóla, og hægt er að fella öll lög úr gildi ef dómstólar ákveða að þau stangist á við stjórnarskrána. Þessi regla um eftirlit dómstóla er ekki í stjórnarskránni, en var staðfest af hæstarétti í málinuMarbury gegn Madison árið 1803.[14]
Bandaríkin eru í fararbroddi á heimsvísu ítækniþróun ognýsköpun, sérstaklega á sviðigervigreindar,tölvutækni,lyfjaþróunar, og þróunarlæknabúnaðar,loftferðabúnaðar oghergagna.[27] Efnahagur landsins býr að miklumnáttúruauðlindum, þróuðum innviðum og mikilli framleiðni.[28] Bandaríkin búa yfir næstverðmætustu náttúruauðlindum heims, sem voru metnar á 44,98 billjón dali árið 2019, þótt nokkur munur sé milli heimilda.[29] Í Bandaríkjunum eru hæstu meðaltekjur heimila og launafólks meðalOECD-ríkja.[30] Árið 2013 voru Bandaríkin með sjöttu hæstu miðtekjur heimila, og höfðu þá fallið úr fjórða sæti frá 2010.[31][32]
Þótt efnahagur Bandaríkjanna hafi þróast frá iðnaði, eru Bandaríkin enn iðnaðarstórveldi.[43] Bandaríkin eru með minnavelferðarkerfi og dreifa minna af tekjum gegnum skattkerfið en flest önnurhátekjulönd.[44] Bandaríkin voru þannig í 41. sæti yfir lönd eftirlaunaójöfnuði af 156 löndum árið 2017[45] og voru þar hæst allra þróaðra ríkja.[46] Þann 2. febrúar 2022 voruþjóðarskuldir Bandaríkjanna 30 billjónir dala.[47]
Íbúar Bandaríkjanna eiga sér fjölbreyttan uppruna. 37 skipulagðir upprunahópar voru með yfir milljón sem töldu sig til þeirra samkvæmt könnun árið 2004.[54] Stærsta þjóðarbrotið samkvæmt eigin skilgreiningu eru hvítir Bandaríkjamenn af evrópskum uppruna, eða 57,8%.[55] Bandaríkjamenn af rómönskum uppruna teljast vera 18,7% íbúa og þeldökkir Bandaríkjamenn 12,1%. Fjórði stærsti hópurinn eru Bandaríkjamenn af asískum uppruna, 5,9%. Bandaríkjamenn sem telja sig tilfrumþjóða Ameríku eru um 1%. Þess ber að gæta að í manntalinu hefur verið hægt að haka við fleiri en einn valmöguleika frá árinu 2000 og árið 2020 merktu 4,1% allra svarenda við tvo eða fleiri möguleika (yfir 10% þeirra sem merktu við rómanskan uppruna).[56] Árið 2020 varmiðaldur íbúa Bandaríkjanna 38,5 ár.[49]
Árið 2018 voru næstum 90 milljón innflytjendur og annarrar kynslóðar innflytjendur í Bandaríkjunum, eða 28% allra íbúa landsins.[57] Af þeim íbúum sem fæddir voru erlendis, miðað við árið 2017, voru 45% með ríkisborgararétt, 27% með löglega skráða varanlega búsetu, 6% með löglega tímabundna búsetu og 23% ólöglegir innflytjendur.[58] Bandaríkin hafa um áratugaskeið verið leiðandi í móttökuflóttafólks og tekið við fleirum en öll önnur lönd heims samanlagt.[59]
Enska er í raun opinbert tungumál Bandaríkjanna, enda þótt ekkert opinbert mál sé skilgreint í alríkislögum. Samt gera sum lög, þar á meðal lög um veitingu ríkisborgararéttar, ráð fyrir ensku sem tungumáli landsins. Árið 2007 töluðu um 226 milljónir eða 80% landsmanna fimm ára og eldri einungis ensku heima hjá sér. Um 12% landsmanna talaspænsku heima hjá sér en spænska er næstalgengasta tungumálið í Bandaríkjunum og algengasta annað mál sem kennt er í skólum.[61] Sumir Bandaríkjamenn vilja að enska verði gerð að opinberu máli landsins með lögum, eins og er raunin í 28 ríkjum.[62] ÁHawaii eru bæðihawaiska og enska skilgreind sem opinber tungumál í lögum ríkisins.[63]
ÍNýja-Mexíkó er ekkert opinbert tungumál skilgreint en lög kveða á um notkun bæði ensku og spænsku. ÍLouisiana er því eins farið með ensku og frönsku.[64] Í sumum öðrum ríkjum, svo semKaliforníu kveða lög á um að ákveðin opinber skjöl verði að vera tiltæk á spænsku auk ensku, þar á meðal skjöl er varða dómstóla.[65] Sum svæði viðurkenna stöðu tungumála innfæddra auk ensku:Samóamál ogkamorrómál eru viðurkennd á Bandarísku Samóaeyjum og í Guam; Spænska er opinbert mál áPúertó Ríkó.
Bæði fylki og sveitarfélög reka opinbera skóla í Bandaríkjunum enmenntamálaráðuneyti Bandaríkjanna setur skólahaldi reglur og styrkir starfsemina. Í flestum fylkjum er skólaskylda frá sex eða sjö ára aldri til átján ára aldurs en þá lýkur menntaskóla (e.high school) eftir tólfta bekk. Í sumum fylkjum geta nemendur lokið menntaskóla sextán eða sautján ára gamlir. Um 12% barna ganga í einkaskóla og rétt rúmlega 2% barna hljóta menntun sína heima fyrir. Um 84,6% Bandaríkjamanna hafa lokið stúdentsprófi um 25 ára aldur.
Fjölmargirháskólar eru starfræktir í Bandaríkjunum, bæði ríkisreknir og einkareknir, aukalþýðuháskóla. Um 52,6% Bandaríkjamanna hafa stundað nám á háskólastigi og 27,2% ljúkaB.A.-gráðu (eða annarri sambærilegri gráðu í grunnnámi). Um 9,6% Bandaríkjamanna hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi.
Bandaríkin erufjölmenningarríki sem byggist á miklum fjölda ólíkra upprunahópa, hefða og gilda.[68][69] Menningarleg áhrif Bandaríkjanna eru auk þess mikil á heimsvísu.[70][71] Frumbyggjamenning í Bandaríkjunum telur meðal annars menninguFrumþjóðanna,Hawaii-búa ogfrumbyggja Alaska, en þess utan eru núverandi íbúar Bandaríkjanna eða forfeður þeirra nær allir innflytjendur eða fluttir þangað sem þrælar síðustu fimm aldirnar.[72] Bandarísk meginstraumsmenning er þvívestræn menning sem byggist að mestu leyti á menningu evrópskra innflytjenda með menningaráhrifum meðal annars frá afrískum þrælum.[68][73] Síðustu tvær aldir hefur aðflutningur fólks fráAsíu og sérstaklegaRómönsku Ameríku, bæst við blöndu bandarískrar menningar sem er stundum lýst sembræðslupotti eða ósamstæðrisalatskál.[68] Þrátt fyrir aðlögun innflytjenda að bandarískri meginstraumsmenningu er mikill félagslegur ójöfnuður sem byggist meðal annars á uppruna, kynþætti[74] og auðlegð.[75]
Bandarískt samfélag er stundum talið einkennast af sterkuvinnusiðferði,[76] samkeppnishæfni,[77] og einstaklingshyggju.[78] „Bandaríska trúarjátningin“ leggur áherslu á frelsi, jafnrétti, einkaeign, lýðræði, réttarríki og takmörkuð afskipti stjórnvalda.[79] Miðað við aðrar þjóðir gefa Bandaríkjamenn mjög mikið til góðgerðamála. Samkvæmt könnunCharities Aid Foundation frá 2016 gáfu Bandaríkjamenn 1,44% af landsframleiðslu til góðgerðamála, mun meira en nokkrir aðrir.[80]
Ameríski draumurinn, trúin áfélagslegan hreyfanleika, er lykill að aðdráttarafli landsins fyrir innflytjendur.[81] Hvort þessi trú byggist á staðreyndum er umdeilt.[82][83][84] Algeng skoðun í Bandaríkjunum er að landið séstéttlaust samfélag,[85] en fræðimenn hafa bent á markverðan mun á stéttum í landinu, sem hefur áhrif á félagsmótun, tungumál og gildi.[86] Bandaríkjamenn eiga til að leggja mikla áherslu á efnahagslegan árangur, en telja líka jákvætt að verameðalmaður.[87]
Deep-dishpizza var fundin upp íChicago,Illinois og dreifðist þaðan um heiminn. Hún er til í ýmsum formum, sem dæmi má nefna afbrigði fráAlaska þar sem elgskjöt er haft sem álegg. Ítölsk pylsa er algengt álegg á pizzur í Bandaríkjunum.
BBQ-sósa er önnur vel þekkt bandarísk uppfinning og er í miklu uppáhaldi hjá fólki víðs vegar um heiminn. BBQ-sósa er mjög vinsæl meðgrillmat en mikið er borðað af honum í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Matreiðsluaðferðir Bandaríkjanna eru sambland hefða frá ýmsum stöðum, meðal annars frá Frakklandi, Afríku og frumbyggjum.Grasker einkenna mið- og norðurríki Bandaríkjanna, skelfiskur við Mexíkóflóa og nautasteikur eru helst þekktar í Texas.[88] Til viðbótar við þessa flóru eiga borgir Bandaríkjanna heilu hverfin sem bjóða upp á matarmenningu frá ýmsum heimshornum. Stórum matarskömmtum ogskyndibitamenningu hefur oft verið kennt um offitu í Bandaríkjunum.[89]
↑DeLear, Byron (July 4, 2013)Who coined 'United States of America'? Mystery might have intriguing answer. "Historians have long tried to pinpoint exactly when the name 'United States of America' was first used and by whom... This latest find comes in a letter that Stephen Moylan, Esq., wrote to Col. Joseph Reed from the Continental Army Headquarters in Cambridge, Mass., during the Siege of Boston. The two men lived with Washington in Cambridge, with Reed serving as Washington's favorite military secretary and Moylan fulfilling the role during Reed's absence."Christian Science Monitor (Boston, MA).
↑Touba, Mariam (November 5, 2014)Who Coined the Phrase 'United States of America'? You May Never Guess "Here, on January 2, 1776, seven months before the Declaration of Independence and a week before the publication of Paine'sCommon Sense, Stephen Moylan, an acting secretary to General George Washington, spells it out, 'I should like vastly to go with full and ample powers from the United States of America to Spain' to seek foreign assistance for the cause."New-York Historical Society Museum & Library
↑Fay, John (July 15, 2016)The forgotten Irishman who named the 'United States of America' "According to the NY Historical Society, Stephen Moylan was the man responsible for the earliest documented use of the phrase 'United States of America'. But who was Stephen Moylan?"IrishCentral.com
↑Etheridge, Eric; Deleith, Asger (19 ágúst 2009).„A Republic or a Democracy?“.The New York Times blogs. Sótt 7 nóvember 2010. „The US system seems essentially a two-party system....“
↑Fordham, Benjamin (október 2017). „Protectionist Empire: Trade, Tariffs, and United States Foreign Policy, 1890–1914“.Studies in American Political Development.31 (2):170–192.doi:10.1017/s0898588x17000116.ISSN0898-588X.S2CID148917255.
↑Wright, Gavin, and Jesse Czelusta, "Resource-Based Growth Past and Present", inNatural Resources: Neither Curse Nor Destiny, ed. Daniel Lederman and William Maloney (World Bank, 2007), p. 185.ISBN 0821365452.
↑Benjamin J. Cohen,The Future of Money, Princeton University Press, 2006; cf. "the dollar is the de facto currency in Cambodia", Charles Agar,Frommer's Vietnam, 2006, p. 17
↑Hamilton, Brady E.; Martin, Joyce A.; Osterman, Michelle J.K. (maí 2021).Births: Provisional data for 2020(PDF) (Report). Vital Statistics Rapid Release.bindi. Hyattsville, MD: National Center for Health Statistics.doi:10.15620/cdc:104993.
↑Thompson, William E.; Hickey, Joseph V. (2004).Society in focus: an introduction to sociology (5th. útgáfa). Boston: Pearson/Allyn and Bacon.ISBN978-0-205-41365-2.
↑Gutfeld, Amon (2002).American Exceptionalism: The Effects of Plenty on the American Experience. Brighton and Portland: Sussex Academic Press. bls.65.ISBN978-1-903900-08-6.