Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Atlantshafsbandalagið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Atlantshafsbandalagið
North Atlantic Treaty Organization
Organisation du traité de l'Atlantique nord
Fáni

Aðildarríki (2024) sjást hér grænlituð.
SkammstöfunNATO (enska); OTAN (franska)
EinkennisorðAnimus in consulendo liber
Stofnun4. apríl 1949;fyrir 76árum (1949-04-04)
GerðHernaðarbandalag
HöfuðstöðvarFáni BelgíuBrussel, Belgíu
Meðlimir
Opinber tungumálEnska,franska
FramkvæmdastjóriMark Rutte
Yfirmaður hermálanefndarinnarGiuseppe Cavo Dragone
Yfirmaður EvrópuherstjórnarinnarChristopher G. Cavoli
Yfirmaður herstjórnarmiðstöðvarinnarPierre Vandier
Vefsíðawww.nato.int

Atlantshafsbandalagið (einnigNATO eðaNATÓ eftirenskriskammstöfun á nafni þess:North Atlantic Treaty Organisation; eðaOTAN eftirfranskri skammstöfun á heiti þess:l'Organisation du traité de l'Atlantique nord) erhernaðarbandalag með 32 aðildarríki þar sem 30 eru íEvrópu og 2 íNorður-Ameríku. Bandalagið var stofnað í kjölfarsíðari heimsstyrjaldar við upphafkalda stríðsins. Skrifað var undir stofnsáttmála bandalagsins íWashington D.C.4. apríl1949. Kjarninn í stofnsáttmála bandalagsins er að aðildarríki skuldbinda sig til að tryggjasameiginlegar varnir hvers annars ef utanaðkomandi aðili ræðst á eitthvert þeirra. Þetta er inntak 5. greinar samningsins þar sem kveðið er á um að árás á eitt aðildarríki jafngildi árás á þau öll.

Fimmta greinin var hugsuð til að geraSovétríkjunum það ljóst að innrás inn íVestur-Evrópu jafngilti stríðsyfirlýsingu viðBandaríkin og allan hernaðarmátt þeirra. Á móti stofnuðu Sovétríkin ásamt bandamönnum sínum íAustur-EvrópuVarsjárbandalagið. Hernaðarbandalögin tvö léku síðan aðalhlutverk íkalda stríðinu og því vígbúnaðarkapphlaupi og kjarnorkuvopnavæðingu sem einkenndu það. Innrás Sovétmanna í Vestur-Evrópu varð aldrei að veruleika. Eftirupplausn Sovétríkjanna árið 1991 breyttist hlutverk bandalagsins, sem hóf sína fyrstu stóru hernaðaríhlutun íBosníu og Hersegóvínu (1992-1995) ogJúgóslavíu (1995). 5. grein NATO-samningsins var virkjuð í fyrsta sinn 12. september 2001 eftirhryðjuverkaárás á Bandaríkin. Það leiddi til hernaðaríhlutunar íAfganistan meðAlþjóðaliðinu. Bandalagið hefur síðan þá tekið þátt í ýmsum aðgerðum, eins ogherþjálfunÍrakshers ogherlögreglu Íraks, hernaðaraðgerðum íLíbíu 2011, og baráttu gegnsjóránum íSómalíu.

Frá lokum kalda stríðsins hafa sextán aðildarríki bæst við, þar á meðal fyrrum aðildarríki Varsjárbandalagsins og fyrrumsovétlýðveldi. Atlantshafsbandalagið hefur átt í margvíslegu samstarfi viðRússland, en rússneskir ráðamenn hafa sagt útþenslu bandalagsins í austur vera ógn við öryggishagsmuni Rússlands. Rússland er andsnúið mögulegri aðildÚkraínu að NATO.Innlimun Rússlands á Krímskaga 2014 vakti hörð viðbrögð frá bandalaginu sem lagði aukna áherslu á sameiginlegar varnir aðildarríkjanna.Innrás Rússa í Úkraínu 2022 fékk NATO til að efla varnir á austurlandamærum bandalagsins. Hún olli því líka að Finnland og Svíþjóð hurfu frá hlutleysisstefnu sinni og sóttu um aðild að bandalaginu. Atlantshafsbandalagið lítur á Úkraínu, Bosníu og Hersegóvínu ogGeorgíu sem umsóknarríki.

Höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins eru íBrussel í Belgíu, enHerstjórnarmiðstöð NATO í Evrópu er nálægtMons. Samanlagt ráða aðildarríki NATO yfir herstyrk sem nemur 3,5 milljón hermönnum og borgaralegu starfsfólki. Samanlögð fjárframlög þeirra til hernaðarmála nema rúmlega helmingi af samanlögðum hernaðarútgjöldum allra ríkja heims. Árið 2025 samþykktu öll aðildarríkin að verja hvert um sig 5% af landsframleiðslu til varnarmála.[1]

Aðildarríki

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 123456789101112Stofnfélagar (1949).
  2. 12Svíþjóð og Finnland sóttu um aðild að bandalaginu eftirinnrás Rússa í Úkraínu 2022. Finnland fékk inngöngu 4. apríl, 2023 og Svíþjóð 7. mars, 2024.
  3. Þýskaland gekk í sambandið semVestur-Þýskaland. Landsvæðið sem áður varAustur-Þýskaland varð hluti af NATÓ með sameiningu þýsku ríkjanna árið 1990.

Aðild Íslands

[breyta |breyta frumkóða]

Lög um inngöngu Íslands í NATO voru samþykkt áAlþingi,30. mars1949. Þau voru mjög umdeild ogtalsverðar óeirðir urðu í sambandi við samþykkt þeirra áAusturvelli.[2] Andstæðingar NATO-aðildar kröfðust þjóðaratkvæðis um þetta mikilvæga mál en ekki var orðið við því. Hins vegar var því lofað að aldrei yrði erlendur her á íslenskri grundu á friðartímum. NATO ásamtBandaríkjaher rakKeflavíkurherstöðina áMiðnesheiði frá1951 til2006.

Fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu var stofnuð árið 1952, þegar Atlantshafsráðið var stofnað með höfuðstöðvar í París. Höfuðstöðvarnar og fastanefndin fluttu til Brussel árið 1967.[3] Árið 1966 var ráðinn sérstakurupplýsingafulltrúi NATO á Íslandi.Magnús Þórðarson, fyrrum blaðamaður hjáMorgunblaðinu gegndi því starfi til dauðadags 1992. Hann var jafnframt stjórnarmaður íVarðbergi ogSamtökum um vestræna samvinnu.[4][5]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Defence expenditures and NATO's 5% commitment“.Nato. 27. ágúst 2025.
  2. Daníel Daníelsson (6. júní 1989).„Misminni frá marslokum 1949“.Morgunblaðið: 45.
  3. „Um fastanefndina“.Stjórnarráðið. Sótt 10.10.2025.
  4. „Barátta milli góðs og ills : NATO-Mangi slær ekki af“.Dagblaðið Vísir:22–23. 23. maí 1987.
  5. Ómar Friðriksson (25. október 1984).„Það er enginn hlutlaus nema hóran“.Helgarpósturinn:16–17.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
5. áratugurinn
6. áratugurinn
7. áratugurinn
8. áratugurinn
9. áratugurinn
10. áratugurinn
Samtök og stofnanir
Kapphlaup
Hugmyndakerfi
Áróður
Utanríkisstefna
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Atlantshafsbandalagið&oldid=1932016
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp