Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Arabar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nokkrir þekktir arabar

Arabar erhugtak sem haft er um fólk sem hefurarabísku að móðurmáli, tilheyrir arabískri menningu eða getur rakið ætt sína tilArabíu. Arabar eru fjölmennastir íMið-Austurlöndum ogNorður-Afríku. Flestir kenna þeir sig einnig við heimaland sitt og jafnvel héruð eða ættbálka. Þessi dreifða búseta og örar breytingar á seinni árum valda því að öll arabamenning er ekki steypt í nákvæmlega sama far. Trúarbrögð eru ekki heldur ótvírætt einkenni. Þótt stærstur hluti araba aðhyllistíslam, erkristni gömul í löndum þeirra en reyndar fækkar því fólki hlutfallslega.

Giskað er á, að fjöldi araba nemi samtals allt að 300 – 350 milljónum manna. En þeir eiga heima í mjög mörgum löndum, og nákvæma tölu er ómögulegt að reikna.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Orðiðarabar finnst fyrst notað um hóp af fólki fyrir um þrjú þúsund árum. Ýmsar skýringar eru gefnar á upphaflegri merkingu, einkumhirðingjar í eyðimörkum.

Þáttaskil urðu í sögu araba snemma á sjöundu öld, þegarMúhameð hóf að kenna ný trúarbrögð, sem fengu mikinn hljómgrunn á meðal þeirra. Í kjölfarið fylgdu landvinningar, og stórveldi risu. Þar á meðal voruKálifadæmin ogOttómanveldið, sem stóð frá 1299 til 1922.

Menningaráhrif frá aröbum

[breyta |breyta frumkóða]

Á miðöldum fór að gæta í Evrópu menningaráhrifa frá aröbum í vísindum. Þeir miðluðu meðal annars margvíslegri fornmenningu ogarabískum tölum. Að einhverju leyti höfðu þeir einnig áhrif í myndlist, tónlist og bókmenntum.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Arabar&oldid=1733372
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp