Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Aríar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Aríar (Erani) er hugtak komið fráarya ísanskrít. Arya þýðir göfugur.

Ein af merkingum þess á við hóp af fólki, það er frum-Indó-Evrópumenn. Það hefur einnig verið talið að þetta fólk hafi myndað sérstakt þjóðarbrot þ.e. „Aríarnir“ líkt ogMax Müller og fleiri notuðu hugtakið á19. öldinni. Af þessari ástæðu hefur hugtakið almennt orðið nokkurs konar samnefnari yfir allaIndó-Evrópumenn. Müller minntist þó sérstaklega á það að notkun hans á hugtakinu ætti við hóp sem sameinaður væri að tungumáli en ekki ætterni. Hugtakið er einkum notað á málfræðilegum forsendum í nútímanum og á þar við fjölskyldu indó-írönsku (stundum kölluð indó-arísku) tungumálana.

Aríski kynstofninn

[breyta |breyta frumkóða]

Önnur merking á við aríska kynstofninn, kynstofn sem talinn er vera beinn afkomandi hins upprunalega aríska þjóðarhóps. Þessi merking var og er enn ríkjandi í kenningum um yfirburði hins evrópska kynþáttar („hvíti maðurinn“), sem margar hverjar hafa einnig dreift sér til Norður-Ameríku og Indlands. Samkvæmt hugmyndafræðinasista íseinni heimstyrjöldinni vargermanski kynþátturinn álitinn hreinasti fulltrúi aríska kynstofnsins, meðsemíska kynstofninn í beinni mótstöðu gegn sér en hreinustu fulltrúar semíta vorugyðingar. Nasisminn hélt því fram að aríski kynstofninn og afkomendur hans væri eini kynstofninn sem væri fær um aðskapa framsækna siðmenningu, á meðan aðrir kynþættir væru aðeins færir um aðviðhalda menningu sinni innan sama þróunarrammans. Þessi hugmynd var og er enn styrkt í gegnum samanburð á framförum evrópskrar siðmenningar á sviðum vísinda, tækni og félagslegrar uppbyggingar miðað við frumstæða menningarheima þeldökkra kynþátta Afríku og Ameríku.

Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Aríar&oldid=1903054
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp