Apuleius erfði fúlgu eftir föður sinn. Hann nam fyrst íKarþagó, síðan íAþenu, þar sem hann kynntist m.a. platonskri heimspeki. Þaðan hélt hann tilRómar þar sem hann namlatínu ogmælskulist. Hann ferðaðist víða umLitlu Asíu ogEgyptaland og kynnti sér heimspeki ogtrúarbrögð.
Apuleius var sakaður um að beitagöldrum til þess að fá athygli og hafa fé af auðugri ekkju sem hann giftist samdi hannMálsvörn sína (Apologia). Ritið fjallar ekki nema að litlu leyti um galdra en öllu meira um andstæðinga hans á niðrandi hátt. Verkið er af mörgum talið með fyndnari ritum fornaldar.
Meðal annarra rita Apuleiusar má nefnaUm guð Sókratesar,Florida,Um Platon og heimspeki hans og ef til vill einnigUm alheiminn.
Myndbreytingarnar eðaGullni asninn er eina skáldsagan á latínu sem er varðveitt í heild sinni. Hún segir frá Luciusi, sem er óvart breytt íasna, ævintýrum hans og raunum. Hann verður vitni að ýmsu óvenjulegu en losnar loks úr prísundinni á óvæntan hátt. Margar styttri sögur eru sagðar innan ramma þessarar sögu, en lengst og frægust þeirra er sagan afCupidó og Psyche. Sögunni lýkur þegar gyðjanÍsis bjargar Luciusi en í kjölfarið verður Lucius fylgismaður hennar.