Antwerpen (franska:Anvers) er önnur stærsta borgin íBelgíu með tæplega 523 þúsund íbúa (1.200.000 á stórborgarsvæðinu). Hún er jafnframt höfuðborg samnefndshéraðs. Á16. öld var Antwerpen ríkasta verslunarborg heims og komu þangað hundruðir skipa daglega. Hún er enn í dag ein mesta hafnarborgEvrópu og mesta verslunarborgdemanta í heimi. Nokkrar byggingar í gömlu miðborginni eru áheimsminjaskrá UNESCO.
Antwerpen liggur nær nyrst í Belgíu, við fljótiðSchelde, sem rennur út íNorðursjó um fjörðinn Westerschelde. Næstu stærri borgir eruTurnhout til austurs (45 km),Brussel til suðurs (50 km),Gent til suðvesturs (50 km) ogBreda íHollandi til norðvesturs (55 km). Hollensku landamærin eru beint við norðurjaðar borgarinnar. Í Antwerpen er ein stærsta og umsvifamesta höfn Evrópu og liggur hún sitthvoru megin við Schelde fyrir norðan borgina. Til að komast til sjávar verða skip að sigla um skipastiga til Westerschelde í Hollandi.
Heitið kemur úr þýsku og er dregið af orðunuman de warp, sem merkirvið hólmana. Hólmarnir voru eiginlega litlar manngerðar smáeyjar á fljótinu Schelde sem fólk bjó á.
Á tímumRómverja mun þorp hafa legið nálægt núverandi borgarstæði. Á 4. öld settust frankar að á staðnum og stofnuðu bæinn við suðurbakka árinnar Schelde. Bærinn óx hratt og hlaut brátt virkisgarð. Það var heilagur Amand fráMaastricht sem kristnaði héraðið og bæinn á 7. öld. Árið 726 kom borgin fyrst við skjöl. 836 siglduvíkingar upp Schelde og gerðu strandhögg við bæinn og brenndu hann niður. Á 9. öld, eftir fráfallKarlamagnúsar, varð áin Schelde landamæriFrakklands ogþýska ríkisins, og lá Antwerpen þá rétt innan þýska ríkisins. Borgin og landið í kring varð að markgreifadæmi og tilheyrði hertogadæminu Brabant.1291 hlaut Antwerpen borgarréttindi, sem brátt varð að stórborg.1430 erfði fyrstBúrgund borgina, en1477 Habsborg.
Efnahagur borgarinnar snerist um höfnina og verslun með klæði. Þegar höfnin íBrugge lokaðist, var öll erlend verslun flutt til Antwerpen að auki. Eftir fundAmeríku varð borgin helstasykurhöfn Evrópu. Hundruðir skipa sigldu inn eða út höfnina á degi hverjum, hlaðin ýmsum vörum, sem dreifðar voru um alla norðanverða álfuna. Silfur frá Ameríku, krydd fráAsíu og alls konar aðrar vörur streymdu í gegnum höfnina. Mikið bankakerfi myndaðist við efnahaginn, sem stóð Medici-ættinni íMílanó og Fugger-ættinni íÁgsborg lítið eftir. Á16. öld var Antwerpen ríkasta borg heims og næststærsta borg Evrópu norðanAlpa. Talið er að á þeirri öld hafi um 40% af öllum viðskiptum heims með vefnaði farið fram í borginni.
1566 hófst umrótsiðaskipta í borginni. Siðaskiptin sem slík ollu litlum breytingum á verslun borgarinnar, en þau urðu til þess aðNiðurlönd hófu uppreisn gegnSpánverjum (Habsborg) sem Antwerpen studdi. Það leiddi til þess að öll verslun við Spánverja lagðist af.1575 lýsti Spánn sig gjaldþrota og gat ekki greitt hermönnum laun.4. nóvember1576 réðist spænskur her inn í Antwerpen í þeim tilgangi að ræna hana í stað þess að bíða launagreiðslna. En þegar uppi var staðið var herinn heila þrjá daga í borginni. Hermennirnir rændi öllu sem hönd festi á, drápu allt að 10 þús íbúa borgarinnar, brenndu niður heil 800 byggingar og ollu gríðarlegum skaða. Atburður þessi gekk í sögubækurnar sem Spænska heiftin (Spaanse Furie) og varð til þess að jafnvel kaþólikkar gengu í lið með uppreisnarmönnum í Hollandi. Efnahagslega náði Antwerpen sér aldrei á strik á ný. Hin mikla verslun borgarinnar fluttist að mestu tilAmsterdam. Á hinn bóginn varð Antwerpen miðstöð uppreisnarmanna gegn spænskum yfirráðum næsta áratuginn, eða þar til Alessandro Farnese, nýi spænski landstjórinn, settist um borgina1585. Eftir stutt umsátur féll borgin og hertóku Spánverjar hana öðru sinni. Í friðarsamningum30 ára stríðsins1648, sem einnig voru friðarsamningar Hollands og Spánar, var kveðið svo á um að loka Schelde (þ.e. Westerschelde) fyrir allri umferð skipa. Þetta þýddi endanlegan niðurgang Antwerpens sem hafnarborg næstu 200 árin.
1796 hertóku Frakkar Niðurlönd og var suðurhluti þeirra innlimaður Frakklandi. Antwerpen var því til skamms tíma frönsk borg meðanNapoleons naut við. Frakkar mynduðu reyndar núverandi hérað í kringum Antwerpen og varð borgin þá í fyrsta sinn héraðshöfuðborg, sem hún er enn. Þrátt fyrir það viðhélst fátækt í borginni. Íbúum hafði fækkað niður í 40 þús. Napoleon sá Antwerpen fyrir sér sem mikilvæga hafnarborg og reyndi að stækka höfnina og leyfa siglingar um Westerschelde. En siglingatímabilið stóð of stutt yfir til að efnahagurinn kæmist í gang að einhverju ráði.1830 gerðu Belgar uppreisn gegn Hollendingum og lýstu yfir sjálfstæði. Belgískir uppreisnarmenn hertóku Antwerpen og héldu henni þegar konungsríkið Belgía var stofnað. Því varð borgin belgísk, en ekki hollensk. Hollendingar héldu að vísu virkinu í borginni í tvö ár, en urðu að lokum að gefast upp og hverfa frá.
Belgískir hermenn verja Antwerpen í heimstyrjöldinni fyrri
1863 opnuðu Hollendingar fyrir siglingar um Westerschelde. Í kjölfarið upplifði Antwerpen nýtt blómaskeið, enda var höfnin stækkuð og samfelldur friður ríkti það sem eftir lifði19. aldar. Með aukinni verslun, ásamt umrótumiðnbyltingarinnar, varð Antwerpen á ný að auðugri heimsborg.1885 og1894 voru heimssýningar haldnar þar í borg, sem milljónir manna sóttu heim. Einnig var fyrsta HM í fimleikum haldið í borginni árið1903. Eftir hið mikla viðnám í borginniLiege í upphafiheimstyrjaldarinnar fyrri1914 gegn þýska innrásarliðinu, hörfaði belgíski herinn til Antwerpen, ásamt ríkisstjórn landsins. Þjóðverjar gerðu umsátur um borgina og í 11 daga var hart barist. Að lokum flúði ríkisstjórnin og herinn úr borginni, ásamt um einni milljón Belga. Flestir fóru til Hollands. Síðustu belgísku hermennirnir yfirgáfu borgina8. október 1914. Daginn eftir hertóku Þjóðverjar borgina og héldu henni til stríðsloka í nóvember1918. Borgin náði sér fljótt eftir stríð. Til marks um það vorusumarólympíuleikarnir haldnir þar í borg1920 og enn önnur heimssýning1930.
Þjóðverjar hertóku Antwerpen aftur ímaí1940, að þessu sinni nær bardagalaust. Sökum hernaðarmikilvægis hennar, t.d. vegna hafnarinnar og iðnaðarins, gerðu bandamenn ítrekaðar loftárásir á borgina. Þær hörðustu voru gerðar5. apríl1943, en þá létust um 2000 manns. Íseptember1944 náðuBretar að frelsa borgina. Sökum þess að höfnin reyndist óskemmd, varð hún að mikilvægri birgðastöð fyrir heri bandamanna. Á hinn bóginn gerðu nú Þjóðverjar loftárásir á Antwerpen, aðallega með flugskeytum, allt fráoktóber 1944 tilmars1945. 1200 flugskeyti hæfðu borgina á þessum tíma. Í þessum árásum létust allt að 7000 manns. Flugskeytin voru svo fljót að ekki var hægt að vara við þeim. Þau lentu víða í borginni, íbúum oftast að óvörum. Time Magazine íNew York kallaði borginaThe City of Sudden Death (Borg hins óvænta dauða). Á hinn bóginn slapp höfnin aftur við allar meiriháttar skemmdir. Eftir stríð var höfnin í Antwerpen enn stækkuð. Hún var á þessum tíma þegar orðin stærsta borg landsins. Frá Antwerpen er hægt að sigla um skurði víða um landið, t.d. til fljótsinsMaas. Í upphafi21. aldar var höfnin sú sjötta stærsta í heimi hvað umsvif varðar. Antwerpen er einnig mikið stórveldi á efnahagssviðinu. Hún er mesta viðskiptaborg með demöntum, en til skamms tíma voru um 80% allra demanta heims seldir þar í borg. Ein 1.600 fyrirtæki sem versla með demönta eru staðsett í borginni einni saman. Nokkrar byggingar í miðborg Antwerpen eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Sinksenfoor er heiti á skemmtigarði sem tvisvar á ári setur upp leiktjöld í borginni. Þar er boðið upp á 150 mismunandi skemmtiatriði og er garðurinn því einn sá stærsti í Belgíu.
Antwerp Pride er hátíðsamkynhneigðra í borginni og er hún haldin árlega íjúní.
Rubensmarkt heitir flóamarkaður í borginni sem helgar sig17. öldinni. Verslunarfólk er klætt gömlum búningum og fötum eins og þau voru á 17. öld, á tímum málarans Rubens sem starfaði lengi í borginni.
Sumarólympíuleikarnir voru haldnir í Antwerpen haldnir1920. Engir keppendur kepptu fráÍslandi en nokkrir Íslendingar kepptu fyrir hönd annarra þjóða.
WTA Antwerpen ertenniskeppni í borginni sem haldin var innanhús árlega frá2002 til2009.
Aðalknattspyrnufélag borgarinnar erBeerschot AC, sem hét Germinal Beerschot til2011, sem aftur varð til við samruna Germinal Ekeren og Beerschot VAC árið1999. Félögin hafa hvert fyrir sig landað titlum, en síðasti titillinn var sigur í bikarkeppninni2005. Með félaginu lék ÍslendingurinnJón Guðni Fjóluson leiktíðina 2011-12.Nökkvi Þeyr Þórisson spilar með félaginu (frá 2022).
Frúarkirkjan í Antwerpen er dómkirkja borgarinnar. Hún var reist1352-1521, en aðeins annar turninn var reistur. Hann er 123 metra hár og þar með hæsti kirkjuturn Niðurlanda. Í kirkjunni eru nokkur málverk eftir málarann Peter Paul Rubens. Frúarkirkjan var sett á heimsminjaskrá UNESCO1999.
Safn Plantin Moretus í Antwerpen er gömul prentsmiðja frá 16. öld. Hún var stofnuð1555 af Plantin Moretus og var á sínum tíma ein stærsta prentsmiðja heims og jafnframt fyrsta iðnaðarprentsmiðja heims. Pressubekkirnir voru 16 og störfuðu rúmlega 80 manns við þá.1876 keypti borgin húsið og breytti því í safn. Þar er nú elsta prentvél heims, en hún var smíðuð árið1600. Safnið var sett á heimsminjaskrá UNESCO árið2005 og var það fyrsta safnið sem komst á þann lista.
Rubenshuis (Rubenshús) er safn í borginni, en í húsinu bjó og starfaði flæmski málarinn Peter Paul Rubens. Það var hann sjálfur sem lét reisa bygginguna1610 og bjó hann þar allt til dauðadags1640.1937 keypti borgin húsið og breytti því í safn1946. Þar eru ýmsir munir frá tíð Rubens, sem og nokkur af málverkum hans.
Het Steen (Steinninn) er gamla borgarvirkið í Antwerpen. Það var reist á12. öld og er því langelsta mannvirkið sem enn stendur í borginni. Virkið stendur við Schelde, að norðanverðu við borgina, og átti að verja hana fyrir óvinum sem komu upp Westerschelde. Síðar var virkið notað sem fangelsi og voru ófáir fangar teknir af lífi þar.1823 var fangelsinu svo lokað. Eftir það var virkið ýmist notað sem íbúðarhús, sögunarverksmiðja og fiskilager.1862 varð því breytt í fornmunasafn og er svo enn í dag. Einnig er í því sjóminjasafn.
Gamla ráðhúsið í Antwerpen er geysifögur bygging við aðalmarkaðstorgið. Það var reist1561-65 í endurreisnarstíl. Neðst eru súlnagöng sem eitt sinn hýstu verslanir. Efsta hæðin er með langar svalir. Miðjustykkið er fagurlega skreytt styttum af konum sem tákna réttlæti og visku. Þar er einnig stytta afMaríu mey. Þrír stórir skildir hanga á framhliðinni. Sá fyrsti af greifadæminu Brabant, annar af spænsku Habsborgarlínunni, þriðji af markgreifadæminu Antwerpen. Byggingin var brennd af Spánverjum í Spænsku heiftinni 1576, en endurgert þremur árum síðar. Í húsinu eru nokkrir fagurlega skreyttir salir. Það er enn notað sem ráðhús í dag.
Begínuhverfið (Begijnhof) í Antwerpen er óvenjuleg vel viðhaldið. Það var reist á13. öld upphaflega, en flest húsin eru frá16. öld. Í hverfinu er kirkjan, Katrínarkirkja, í nýgotneskum stíl.Begínur lifðu óvenjulega lengi í hverfinu, langt fram á20. öld. Síðasta begínan í hverfinu lést1986. Hverfið hefur ekki verið sett á heimsminjaskrána enn.