Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

António de Oliveira Salazar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
António de Oliveira Salazar
Salazar árið 1968.
Forsætisráðherra Portúgals
Í embætti
5. júlí1932 15. september1968
ForsetiÓscar Carmona
Francisco Craveiro Lopes
Américo Tomás
ForveriDomingos Oliveira
EftirmaðurMarcelo Caetano
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. apríl1889
Vimieiro,Santa Comba Dão,Portúgal
Látinn27. júlí1970 (81 árs)Lissabon, Portúgal
ÞjóðerniPortúgalskur
StjórnmálaflokkurÞjóðernishreyfingin (portúgalska:União Nacional)
TrúarbrögðKaþólskur
HáskóliHáskólinn í Coimbra
StarfHagfræðingur, stjórnmálamaður, kennari
Undirskrift

António de Oliveira Salazar (28. apríl 1889 — 27. júlí 1970) var forsætisráðherraPortúgals frá1932 til1968 og leiðtogi Þjóðernishreyfingarinnar.

Æviágrip

[breyta |breyta frumkóða]

Salazar fæddist í þorpinuSanta Comba Dão, stutt fráCoimbra. Faðir hans, sem var veitingastjóri, kostaði hann til háskólanáms. Í fyrstu lagði Salazar fyrir sigguðfræði en sneri sér síðan aðhagfræði. Eftir nám gerðist hann árið 1916 prófessor við háskólann í Coimbra. Árið 1926, stuttu eftir valdarán hersins gegn lýðveldisstjórn Portúgals, réðManuel de Oliveira Gomes da Costa forsætisráðherra Salazar í stöðu fjármálaráðherra og fól honum að koma lagi á mjög bágan efnahag og skuldakreppu landsins. Salazar gegndi embættinu aðeins í nokkra daga en sagði síðan af sér vegna óánægju með spillingu innan portúgölsku ríkisstjórnarinnar.[1][2]

Árið 1928 grátbáðu portúgölsk stjórnvöld Salazar um að snúa aftur og taka við fjármálaráðuneytinu. Salazar féllst á að gerast fjármálaráðherra á ný með því skilyrði að honum yrði veitt einræðisvald til þess að reka efnahagsstefnu sína.[1] Salazar varð aftur fjármálaráðherra árið 1928 og varð einnig forsætisráðherra landsins árið1932. Árið1933 kynnti hann til sögunnar nýjastjórnarskrá sem gaf honum nánast ótakmörkuð völd og hafði Portúgal þar með stigið sín síðustu skref í áttina að því að verða einræðisríki.

Þegar forseti Portúgals,António de Fragoso Carmona, afhenti Salazar völdin í Portúgal árið1932 var Salazar studdur af ýmsum hreyfingum í landinu. Eftirfyrri heimsstyrjöldina (þar sem Portúgalar börðust meðbandamönnum) reis herinn upp og batt þannig enda á fyrsta lýðveldið. Tveimur árum síðar var Salazar gerður að fjármálaráðherra og náði hann óvenjufljótt tökum á fjármálaóreiðu landsins og landið var rekið með tekjuafgangi í fyrsta skipti í marga áratugi.[2] Það var þessi árangur sem ruddi leið hans til valda þar sem hann var studdur af hernum, konungssinnum, kirkjunni og efri miðstéttinni.

Salazar kynnti PortúgölumEstado Novo (bókstaflega „Nýja ríkið“). Grunnur einræðisstjórnar hans var stöðugleiki þar sem hástéttirnar nutu sín á kostnað hinna fátækari. Þrátt fyrir akademískan bakgrunn sinn var menntun ekki í forgangi hjá Salazar og því var ekki fjárfest í henni. Þrátt fyrir stórtæka leynilögreglu, sem kallaðistPIDE, hélt einræðisstjórn Salazars ekki sama tangarhaldi á þjóðinni og margar aðrar herforingjastjórnir íEvrópu á þessum tíma, líkt ogFrancisco Franco áSpáni. Helstu áherslumál Nýja ríkisins voru hollusta við þjóðina, yfirburðir fjölskyldunnar, hlýðnisskylda við yfirvöld og tryggð viðkaþólsku kirkjuna.[2]

Stjórn Salazars var ávallt talinfasísk, þrátt fyrir að vera það ekki í augum forsætisráðherrans. Sjálfur bannaði Salazar fasistaflokk Portúgals þar sem hann taldi flokkinn of „heiðinn“. Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að Salazar virti bæðiMussolini ogHitler.

Meðan ásíðari heimsstyrjöldinni stóð reyndi Salazar að sigla á milli skers og báru. Rétt eins og nágranni hans, Franco, tók hann hvorki afstöðu með nasistum nébandamönnum í stríðinu, þrátt fyrir að leyfa bandamönnum afnot afAsóreyjum.[3] Helsta ástæða þess að Portúgal tók ekki afstöðu með nasistum var til að stefna ekki nýlendum landsins í hættu. Auk þess vildi Salazar ekki rifta aldagömlu bandalagi Portúgals við Bretland, sem Salazar taldi grundvöll portúgalskrar utanríkisstefnu.[4] Salazar aðstoðaði hins vegarÖxulveldin, einkum með því að senda þeim wolframstál gegnum Sviss.

Árið 1945 voru nýlendur portúgalaAsóreyjar,Madeiraeyjar,Grænhöfðaeyjar,Saó Tóme og Prinsípe,Angóla,portúgalska Gínea ogMósambík íAfríku,Góa,Daman og Diu áIndlandi,Maká íKína ogportúgalska Tímor íSuðaustur-Asíu. Salazar reyndi sem hann gat að halda völdum yfir þessum nýlendum sínum þar sem þær, fremur en nokkuð annað, gerðu landið að heimsveldi. Allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar reyndust þessar nýlendur landsins, og þá sérstaklega í Afríku, honum erfiðar. Portúgalski herinn neyddist til að berjast við uppreisnarmenn í nýlendunum auk þess sem mörg vesturlönd fyrirlitu landið fyrir harða nýlendustefnu sína á sama tíma og þau voru sjálf að slaka á sinni stefnu. Undir lok embættistíðar Salazars átti Portúgal í stríðum við þrjár nýlendur sínar og höfðu þessi stríð talsverð neikvæð áhrif á portúgalskan efnahag og lífsgæði.[3]

Efnahagslega var Portúgal staðnað. Salazar byggði efnahag landsins á nýlendum sínum í stað samvinnu við nágrannalönd sín og sá gróði sem sú stefna hans hefði getað haft í för með sér brann upp í sívaxandi umsvifum hersins í þessum löndum er hann reyndi að berja niður uppreisnir heimamanna.

Árið 1968 féll Salazar af stóli - í orðsins fyllstu merkingu og sennilega í kjölfar heilablóðfalls - og forseti landsins,Américo Tomás, neyddist til að setja hann af sem forsætisráðherra ogMarcelo Caetano tók við. Salazar lést íLissabon tveimur árum síðar.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 12„Óframfærinn einræðisherra“.Samtíðin. 1. september 1940. bls. 8-10.
  2. 123„António de Oliveira Salazar“.Samvinnan. 1. desember 1968. bls. 13-17.
  3. 12„Ferill Salazars“.Morgunblaðið. 28. september 1968. bls. 15.
  4. Henry J. Taylor (14. september 1944).„Voldugur maður, sem fáir þekkja“.Morgunblaðið. bls. 7.


Fyrirrennari:
Domingos Oliveira
Forsætisráðherra Portúgals
(5. júlí193215. september1968)
Eftirmaður:
Marcelo Caetano


Forsætisráðherrar Portúgals
Fyrsta lýðveldið (1910–1926)
Fáni forsætisráðherra Portúgals
Annað lýðveldið (1933–1974)
Þriðja lýðveldið (1974–)
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=António_de_Oliveira_Salazar&oldid=1945926
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp