Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Alkmaar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alkmaar
Fáni
Fáni
Skjaldarmerki
Skjaldarmerki
Staðsetning
HéraðNorður-Holland
Flatarmál
 • Samtals31,22 km2
Mannfjöldi
 (31. desember 2010)
 • Samtals93.945
 • Þéttleiki3.009/km2
Vefsíðawww.alkmaar.nl

Alkmaar er borg í hollenska héraðinuNorður-Hollandi og er með 94 þúsund íbúa. Alkmaar er þekkt ostaborg.

Lega og lýsing

[breyta |breyta frumkóða]

Alkmaar liggur vestarlega íHollandi, á landsvæðinu milliNorðursjávar ogIjsselmeer. Næstu borgir eruHoorn til austurs (20 km),Amsterdam til suðausturs (40 km) ogDen Helder til norðurs (40 km).

Fáni og skjaldarmerki

[breyta |breyta frumkóða]

Skjaldarmerki Alkmaar sýnir gráan turn á rauðum grunni. Turninn er sennilega gamalt virki, Torenburg, sem nú er horfið. Til sitthvorrar handar eru rauð ljón. Efst trónir lárviðarsveigur. Neðst er borði með áletruninni: Alcmaria victrix, sem merkirhin sigursæla Alkmaar. Þessi einkunnarorð hlaut borgin fyrir frækilega framgöngu sína gegnSpánverjum í frelsisstríðinu á16. öld. Merkið sjálft er orðið gamalt, en var formlega tekið upp28. desember1956.Fáninn samanstendur af sex láréttum röndum, þremur hvítum og þremur rauðum. Efst til vinstri er sami grái turninn og í skjaldarmerkinu.

Söguágrip

[breyta |breyta frumkóða]
Umsátrið um Alkmaar 1573
  • Á11. öld myndaðist þorpið í kringum gamla bændakirkju. Þar settust bændur og verslunarmenn að.
  • 1254 fékk Alkmaar borgarréttindi af Vilhjálmi II. greifa.
  • 1573 hertóku Spánverjar borginaHaarlem og sátu síðan um Alkmaar. En með þrautseigju borgarbúa og viturlegum áflóðum þeirra með vatni, tókst þeim að hrekja þá burt. Sigurdagurinn er enn haldinn hátíðlegur í dag.
  • 1799 hertók sameiginlegur her fráEnglandi ogRússlandi borgina í þeirri von að hrekjaFrakka brott en þeir síðastnefndu höfðu hertekið landið árið áður. Aðgerðin mistókst og Frakkar tóku borgina á ný.
  • 1824 er Noordholland-skipaskurðurinn opnaður af Vilhjálmi konungi I, en skurðurinn liggur beint í gegnum borgina.
  • 1945 frelsuðu breskir og kanadískir hermenn borgina sem verið hafði hersetin afnasistum íheimstyrjöldinni síðari.
  • 2004 hélt borgin upp á 750 ára afmæli sitt með mikilli hátíð.

Ostur

[breyta |breyta frumkóða]
Ostamarkaðurinn í Alkmaar er gríðarlega vinsæll

Í Alkmaar snýst margt um ostagerð og ostasölu. Ostamarkaðurinn var stofnaður1622 og er í dag haldinn allaföstudaga frápáskum og fram á haust. Osturinn er seldur í stykkjum eða á þar til gerðum sleðum ef um mikið magn er að ræða. Um 300 þús manns sækja ostamarkaðinn heim árlega og seld eru tugir tonna á hverjum föstudegi. Metið var slegið1916 en þá seldust 300 tonn á einum degi. Markaðurinn hefst á því að torgið er pússað og osturinn borinn þangað á sleðum. Klukkan 10 hringir bjalla og þá byrja lætin, enda er prúttið um ostaverðið órjúfanlegur hluti af kaupunum. Í Alkmaar er ostafélag sem samanstendur af fjórum hópum. Hver hópur samanstendur aftur af sjö burðarmönnum en hópana má þekkja í sundur af litnum á höttum þeirra (rauða, græna, bláa og gula). Yfirmaður hópanna er ostafaðirinn (Kaasvader), en hann þekkist á svörtum staf með silfurlituðum hnúð.

Íþróttir

[breyta |breyta frumkóða]

Aðalknattspyrnulið borgarinnar erAZ Alkmaar, sem varð hollenskur meistari1981 og2009 (lenti í öðru sæti1980 og2006). Liðið hefur auk þess þrisvar orðið bikarmeistari (1978, 1981 og1982) og einu sinni unnið Johan Cruyff bikarinn (2007). ÍEvrópukeppni komst AZ Alkmaar í úrslit árið 1981 en tapaði leiknum fyrirIpswich Town. ÝmsirÍslendingar hafa leikið með félaginu;Jóhann Berg Guðmundsson ogKolbeinn Sigþórsson (sem skipti yfir tilAjax2011).

Í Alkmaar er skautabraut í fullri stærð (400 m) sem tekin var í notkun1972. Brautin er að hálfu leyti opin og er vindur látin blása stöðugt í brautinni. Þar í borg er einnig stór reiðhjólahöll, kölluð Sportpaleis Alkmaar.

Vinabæir

[breyta |breyta frumkóða]

Alkmaar viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:

Frægustu börn borgarinnar

[breyta |breyta frumkóða]

Byggingar og kennileiti

[breyta |breyta frumkóða]
  • Waaggebouw (vogarhúsið) er gríðarmikil bygging sem notuð var fyrir ostageymslu, vog og sölustað. Waag merkir einmitt vog. Húsið var reist á16. öld og vígt1583. Klukknaspilið var sett í1597. Í dag er ostasafnið til húsa í vogarhúsinu.
  • De Accijnstoren er gamalt tollhlið, reist1622. Nú til dags er byggingin notuð sem skrifstofa fyrir hafnarstjórn, enda liggur það við skipaskurðinn.
  • Mýmargar myllur eru í og við Alkmaar. Flestar þeirra eru enn í notkun, enda hafa þær verið gerðar upp síðustu áratugi.
  • Vogarhúsið er stórglæsileg bygging frá 16. öld
    Vogarhúsið er stórglæsileg bygging frá 16. öld
  • De Accijnstoren
    De Accijnstoren
  • Geestmolen er ein af mörgum vindmyllum í Alkmaar
    Geestmolen er ein af mörgum vindmyllum í Alkmaar

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Alkmaar&oldid=1869060
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp