Alcoa-Fjarðaál
Verkfæri
Almennt
Prenta/flytja út
Í öðrum verkefnum
| Alcoa-Fjarðaál | |
| Rekstrarform | Álver |
|---|---|
| Stofnað | 2006 |
| Stofnandi | Alcoa, Inc. |
| Staðsetning | Reyðarfjörður, Ísland |
| Lykilpersónur | Fernando Da Costa, forstjóri |
| Starfsemi | Álframleiðsla |
| Starfsfólk | 570 (2021) |
| Vefsíða | https://www.alcoa.com/iceland/ic |

Alcoa-Fjarðaál er álver íReyðarfirði og er knúið af raforku fráKárahnjúkavirkjun. Framleiðsla var gangsett í apríl 2007 og hafði álverið náð fullri afkastagetu í ágúst 2008.[1] Framleiðslugeta álversins eru um 1000 tonn á sólarhring eða kringum 350 þúsund á ári en starfsleyfi er fyrir allt að 360 þúsund tonn á ári.[2] Álverið framleiðir ál að verðmæti 2 - 2.5 milljónir dollara á sólarhring. Hjá Alcoa-Fjarðaál starfa um 550 manns en á álverssvæðinu starfa í kringum 800 manns sem verktakar við framleiðslu, viðhald, þjónustu og ráðgjöf eða hjá iðnaðar þjónustufyrirtækinuRubix.[3]