Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Albrekt af Mecklenburg

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Albrekt af Mecklenburg. Samtímamynd.

Albrekt af Mecklenburg (1338/1340 –31. mars eða1. apríl1412) eðaAlbrekt 1. Svíakonungur og Albrekt 2. hertogi af Mecklenburg og Schwerin var konungur Svíþjóðar 1363/1364 þar til hann var settur af1389 en hann sagði þó ekki formlega af sér fyrr en1405.

Albrekt var næstelsti sonurAlbrekts mikla hertoga afMecklenburg ogEufemíu Eiríksdóttur, systurMagnúsar smeks, konungs Noregs og Svíþjóðar. Þegar kom fram yfir 1360 var mikil óánægja í Svíþjóð með stjórn Magnúsar; aðalsmenn risu gegn honum en hann hrakti marga þeirra í útlegð1363.

Hópur aðalsmanna, undir forystu Bo Jonsson Grip, hélt þá til Mecklenburg og bauð Albrekt mikla krúnuna handa næstelsta syninum gegn því að hann hjálpaði þeim að koma Magnúsi frá. Albrekt mikli sendi 1600 manna lið til Svíþjóðar og voru þeir fljótir að ná landinu á sitt vald. Albrekt yngri var hylltur konungur íStokkhólmi í nóvember og18. febrúar1364 var hann formlega kjörinn konungur Svíþjóðar.

Magnús sneri aftur ásamtHákoni syni sínum, sem hafði tekið við konungsvöldum í Noregi, árið 1365 en þeir biðu ósigur í orrustu og Albrekt tók Magnús til fanga. Hákon komst hins vegar undan og fékkValdimar atterdag Danakonung í lið með sér en Albrekt naut stuðnings ýmissa þýskra fursta ogHansaborga. Þetta þýddi aukin erlend áhrif í Svíþjóð og það gerði Albrekt óvinsælan hjá almenningi en Hákon fékk aukinn stuðning. Á endanum var þó saminn friður og Magnúsi konungi var sleppt gegn greiðslu lausnargjalds. Hákon fékk yfirráð í hluta Svíþjóðar en meirihluti ríkisins var undir stjórn dróttsetans, Bo Jonsson Grip. Albrekt var konungur Svíþjóðar að nafninu til en réði þó aðeins yfir Stokkhólmi og nokkrum köstulum.

Hann var algjörlega háður Bo Jonsson Grip og öðrum aðalsmönnum og vald þeirra stórjókst. Eftir dauða dróttsetans árið1386 reyndi Albrecht þó að styrkja stöðu sína en aðalsmenn sneru sér tilMargrétar drottningar í Danmörku og báðu um aðstoð. Hún sendi lið til Svíþjóðar en Albrekt leitaði sér hjálpar íÞýskalandi og í orrustunni við Åsle í febrúar 1389 barðist danskt og þýskt herlið við hlið beggja fylkinga Svía. Albrekt tapaði og var tekinn höndum ásamt Eiríki syni sínum. Þeim var ekki sleppt lausum fyrr en haustið 1395. Albrekt hélt þá til Mecklenburg en hann hafði erft hertogadæmið þegar Hinrik eldri bróðir hans dó 1384. Hann sagði þó ekki formlega af sér konungdómi fyrr en 1405, sextán árum eftir að hann var settur frá völdum.

Albrekt var tvígiftur. Árið 1359 giftist hann hinni ellefu ára gömluRikardis af Schwerin og áttu þau tvö börn. Sonurinn, Eiríkur af Mecklenburg, var fæddur um 1365. Hann sat í fangelsi með föður sínum en 1396, ári eftir að þeim var sleppt lausum, hélt hann tilGotlands og lagði það undir sig en dó svo úr plágu 1397.

Seinni kona Albrekts, sem hann giftist i Schwerin 1396, var Agnes af Braunschweig-Lüneburg. Hún var þó aldrei drottning. Sonur þeirra var Albrekt hertogi af Mecklenburg og Schwerin.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]


Fyrirrennari:
Magnús Eiríksson smek
Svíakonungur
(1363/13641389)
Eftirmaður:
Margrét Valdimarsdóttir mikla (ríkisstjóri)


Munsöætt
Frá u.þ.b. 970–u.þ.b. 1060
Steinkelsætt
Frá u.þ.b. 1060–u.þ.b. 1130
1160–1161
Sörkvisætt ·Eiríksætt
Frá u.þ.b. 1130–1250
Fólkungar
1250–1364
Mecklenburg-ætt
1364–1389
Kalmarsambandið
Ríkisstjórar eruskáletraðir
1389–1523
Vasaætt
1523–1654
Pfalz-ætt
1654–1751
Holstein-Gottorp-ætt
1751–1818
Bernadotte-ætt
Frá 1818
  • ¹ Ætterni óvíst
  • ² Ríkisstjóri
  • ³ Réð einnig yfir Noregi
  • ⁴ Réð einnig yfir Danmörku og Noregi
  • ⁵ Réð einnig yfir Póllandi
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Albrekt_af_Mecklenburg&oldid=1610507
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp