Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Alberto Sordi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Úr myndinniUn giorno in pretura (1953)

Alberto Sordi (15. júní192024. febrúar2003) varítalskurleikari ogleikstjóri sem er þekktastur fyrir hlutverk sín íítölskum gamanmyndum á blómaskeiði þeirra á 6. og 7. áratug 20. aldar, ásamtVittorio Gassman,Nino Manfredi,Ugo Tognazzi ogMarcello Mastroianni. Hann sló fyrst í gegn í kvikmyndunumHvíti furstinn (Lo sceicco bianco - 1952) ogSlæpingi (I vitelloni - 1953) eftirFederico Fellini. Hann þróaði þar persónu ungs sjálfhverfs slæpingja af lágum stigum, en í síðari gamanmyndum varð hann einkum þekktur fyrir hlutverk hins dæmigerða Ítala, sem henti gaman að smáborgaraskap og staðalmyndum. Meðal annarra þekktra mynda hans eruHermenn á heimleið (Tutti a casa - 1960),Fumo di Londra (1966) ogUn borghese piccolo piccolo (1977).

Í tilefni af aldarafmæli fæðingar rómverska leikarans var kvikmyndinPermette? Alberto Sordi sýnd.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistAlberto Sordi.
  Þettaæviágripsem tengistkvikmyndum erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Alberto_Sordi&oldid=1677415
Flokkar:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp