Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Aegyptus

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rómverskur peningur með myndHadríanusar öðrum megin og Egyptalandi hinum megin í líki konu sem situr á kornkörfu.

Aegyptus varrómverskt skattland stofnað árið 30 f.Kr. eftir sigur Octavíanusar (sem síðar var þekktur semÁgústus keisari) áKleópötru, drottningu Egyptalands, ogMarkúsi Antoníusi. Octavíanus innlimaðiEgyptaland íRómaveldi og skipaðiGaius Cornelius Gallus fyrsta landstjóra þar. Skattlandið náði yfir mest af því sem í dag telst tilEgyptalands fyrir utanSínaískaga enRauðahafsströndin varð ekki hluti af því fyrr en í valdatíðCládíusar. Aegyptus átti landamæri að skattlöndunumCreta et Cyrenaica (Krít ogKyrenaiku) í vestri ogIudaea (Júdeu) í austri. Aegyptus var mikilvægtkornræktarsvæði.

Gríska var stjórnsýslumál í skattlandinu oglatína náði þar aldrei góðri fótfestu.Kristni var boðuð þar afMarkúsi guðspjallamanni sem stofnaðipatríarkadæmi íAlexandríu árið33 e.Kr. Þegar Rómaveldi skiptist í tvennt varð Egyptaland hluti afAustrómverska ríkinu og hnignaði hægt. Árið 415 vorugyðingar reknir frá Alexandríu og heimspekingurinnHýpatía myrt af kristnum múgi sem markar endalokhellenískrar menningar.

PersaveldiSassanída reyndu að vinna landið afBýsantíum um 620.Arabíski herforinginn'Amr ibn al-'As lagði svo landið undirÓmar miklakalífa 640-641. Egyptar, sem þá voru lítt hallir undir keisaradæmið, veittu ekki mikla mótspyrnu.

Rómverska heimsveldið á hátindi sínum við lát Trajanusar (117 e.Kr.)
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Aegyptus&oldid=1640447
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp