Adele Laurie Blue Adkins (f. 5. maí 1988), betur þekkt semAdele, erbresk söngkona og lagasmiður. Söngferill hennar hófst þegar hún skrifaði undir samning viðXL Recordings árið 2006 eftir að hafa notið mikilla vinsælda á vefsíðunniMySpace. Fyrsta sólóplata hennar,19, kom út árið 2008 við við vikið lof gagnrýnenda og náði toppsætum á vinsældarlistum á heimsvísu, þar á meðal í Bretlandi, Hollandi og Bandaríkjunum. Vinsældir hennar jukust enn eftir að hún hlautGrammy-verðlaunin semBesti nýliðinn árið 2009, ein af mörgum verðlaunum sem hún vann það ár. Adele gaf út aðra hljómplötu sína,21, í janúar 2011. Platan seldist feikna vel. Meðal annars seldist hún í yfir fjórtán milljón eintökum í Bretlandi og er sú tekjuhæsta sem hefur verið gefin út þar á landi á 21. öld.21 sat í efsta sæti ábandaríska vinsældarlistanum lengur en nokkur önnur plata hafði gert síðan 1993. Hún var einnig tilnefnd til sex Grammy-verðlauna eftir útgáfu plötunnar og vann þau öll.
Adele fæddist árið 1988 íTottenham,London. Hún byrjaði að syngja aðeins fjögurra ára gömul og varð fljótt áhugasöm um mismunandi raddir. Þegar hún í fyrsta skipti hélt á hljóðnema, þá fjórtán ára gömul uppgötvaði hún að tónlist væri það sem hún hefði áhuga á að vinna við. Hún var fljótt farin að semja lög og var hún búin að semja lagið „Hometown Glory“ sem er á plötunni hennar19 aðeins sextán ára.
Ferill hennar byrjaði á síðunniMySpace þar sem vinkona hennar bjó til síðu handa henni í lok ársins 2004. Þar setti hún inn upptökur af lögum sínum. Það var þó ekki fyrr en árið 2006 sem plötufyrirtæki fóru að taka eftir hæfileikum hennar. Á þessu sama ári í maí útskrifaðist hún úrBRIT School íCroydon íSuður-London. Þar útskrifaðist hún meðal annars með söngkonunniLeona Lewis sem einnig hefur notið vinsælda í Bretlandi og víðar. Adele hefur þakkað skólanum fyrir það að hjálpa henni að læra að beita röddinni.
Í september árið 2006 gerði Adele samning við XL Recordings í London, það er einnig sama plötufyrirtæki og gerði samning við íslensku hljómsveitinaSigur Rós. Fyrsta lag hennar sem hét „Hometown Glory“ og kom út í október 2007 og síðan kom lagið „Chasing Pavements“ út í janúar 2008. Bæði þessi lög urðu mjög vinsæl og eru þau á hennar fyrstu plötu sem heitir því einfalda nafni19. Platan náði því að komast í fyrsta sæti á vinsældarlistum í Bretlandi.
Það var þó erfiðara fyrir hana að ná athygli í Bandaríkjunum og var það ekki fyrr en hún tók þátt sem tónlistaratriði í þættinumSaturday Night Live sem hún sló í gegn þarlendis.
Árið 2009 hlaut hún Grammy-verðlaunin,Best New Artist ogBest Female Pop Vocal Preformance.
Í janúar árið 2011 kom önnur platan hennar út,21 og náði miklum vinsældum. Adele sagði á bloggi sínu að hún muni eftir því þegar hún var 15 ára og fór með föður sínum tilNew York, þar labbaði hún íTimes Square og vonaðist til að hún myndi einn daginn eiga plötu í plötubúðum í New York. Henni fannst það þó mjög ólíklegt að það myndi gerast en skjátlaðist henni.