Actavis Group | |
![]() | |
Rekstrarform | Einkafyrirtæki |
---|---|
Slagorð | Hagur í heilsu |
Stofnað | 1956 |
Staðsetning | Hafnarfjörður,Íslandi |
Lykilpersónur | Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður,Claudio Albrecht forstjóri ogGuðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri á Íslandi |
Starfsemi | Framleiðsla samheitalyfja (á íslandi og erlendis); auk fleiri vara eftir sameiningu við erlend fyrirtæki |
Starfsfólk | 10.000 |
Vefsíða | www.actavis.is www.actavis.com |
Actavis er vörumerki fyrirtækisins Actavis, sem nú er í erlendri eigu en var upphaflega íslenskt fyrirtæki.
Íslenska fyrirtækiðActavis Group h.f., var eitt stærstasamheitalyfjafyrirtækis heims, eftir kaup á erlendum samheitafyrirtækjum, og var þá enn með aðalstöðvar á Íslandi og var skráð á aðallistaKauphallar Íslands þar til í júlí 2007, undir stuttnefninu ACT.
Eftir kaup á fyrirtækinu af erlendum aðilum var nafninu breytt ítrekað, því það var ítrekað sameinað öðrum lyfjafyrirtækjum, meðal annars við sameiningu við fyrirtækið sem framleiðirBotox (sem er ekki samheitalyf). Síðar var nafni fyrirtækisins aftur breytt í Actavis, og hluti þess seldur til Teva, sem er núverandi eigandi undirfyrirtækisins Actavis.
Actavis á Íslandi framleiðir og selur lyf og lyfjahugvit bæði innanlands sem utan en sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Fyrirtækið var stofnað sem innkaupasamband lyfsala árið1956 og hét þáPharmaco. Hjá fyrirtækinu starfa nú í heildina um 10.000 manns, en fyrirtækið er með starfsemi í meira en 40 löndum.
Árið 2000 fjárfestiBjörgólfur Thor Björgólfsson í gegnum Samson í félaginu Pharmaco og árið 2002 keypti Samson einnig lyfjafyrirtækið Delta og sameinaði það Pharmaco undir nafninu Actavis. Það fyrirtækið var svo í eiguNovators, fyrirtækis hans. Þýski stórbankinnDeutsche Bank þurfti að afskrifa 407 milljónir evra, eða um 66 milljarða íslenskra króna, vegna Actavis árið 2011.[1]
Í nóvember 2012, keypti erlenda fyrirtæðið Watson Actavis Group sem var þá orðið mjög stórt á alþóðavísu en eftir sameininguna varð þriðja stærsta samheitafyrirtæki í heimi.
Erlendar heimasíður Actavis