Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

18. öldin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Árþúsund:2. árþúsundið
Aldir:17. öldin ·18. öldin ·19. öldin
Áratugir:

1701–1710 ·1711–1720 ·1721–1730 ·1731–1740 ·1741–1750
1751–1760 ·1761–1770 ·1771–1780 ·1781–1790 ·1791–1800

Flokkar:Fædd ·Dáin ·Stofnað ·Lagt niður

18. öldin eröld sem hófst 1. janúar1701 og lauk 31. desember1800. Á þessari öld stóðUpplýsingin sem hæst og undir áhrifum frá henni voru gerðar byltingar íAmeríku,Frakklandi og áHaítí. Á sama tíma náðiþrælahald ogmansal hátindi sínum á heimsvísu. Öldin hefur verið kölluð „öld ljóssins“ og „öld skynseminnar“ með vísun íheimspeki upplýsingarinnar sem boðaði breytta tíma byggða áskynsemishyggju. Í fyrstu tóku margir einvaldar Evrópu hugmyndafræði Upplýsingarinnar fagnandi og gerðustupplýstir einvaldar en eftir Frönsku byltinguna tóku þeir höndum saman og mynduðugagnbyltingarbandalög.

Stórveldistími Svíþjóðar leið undir lok eftir ósigur þeirra gegn Rússum íNorðurlandaófriðnum mikla.Rússland,Prússland ogAusturríska keisaradæmið skiptuPólsk-litháíska samveldinu á milli sín og breyttu þannig landslagiMið-Evrópu til frambúðar.Tyrkjaveldi þandist út og gekk í gegnum velmegunarskeið þar sem það tók ekki þátt í neinum styrjöldum í Evrópu frá 1740 til 1768. Vegna þessa dróst Tyrkjaveldi hernaðarlega aftur úr Evrópuveldunum í þeirri endurnýjun sem þau réðust í í kringumSjö ára stríðið 1756-1763. Á seinni hluta aldarinnar beið það röð ósigra gegn Rússlandi.

Bretland gerðistheimsveldi þegarBreska Austur-Indíafélagið lagði undir sig stóra hlutaIndlandsskaga eftir sigur íorrustunni við Plassey 1757 og keppti viðHolland um nýlendur íSuðaustur-Asíu. Á sama tíma missti Bretland nýlendur í Norður-Ameríku eftir frelsisstríð Bandaríkjanna og íIndíánastríðunum. ÍMið-Asíu varð látNader Shah Persakonungs til þess aðDurraniveldið var stofnað íAfganistan og þar sem nú erPakistan. Á Indlandsskaga markar látAurangzeb endalok stórveldisskeiðsMógúlanna.Frakkar kepptu við Breta um áhrif á Indlandsskaga.

Undir stjórnQianlong náðiTjingveldið mestu landfræðilegu útbreiðslu sinni í Asíu. Það lagðiDsungaríu undir sig og tryggði áhrif sín íTíbet ogVíetnam. Útþensla Kína varð til þess að ríkið varð fjölþjóðlegra en áður sem skapaði aukna hættu á uppreisnum og íþyngdi fjárhagnum. Stöðnun og spilling tók að einkenna stjórn ríkisins og lagði grunninn að áföllunum sem Kína varð fyrir á 19. öld.

Landnám Evrópubúa í Ameríku og öðrum heimshlutum fór vaxandi og þróunseglskipa þegarSkútuöld náði hámarki gerði mögulega fólksflutninga milli heimsálfa í áður óþekktum mæli.Iðnbyltingin hófst undir lok aldarinnar með framförum í smíðigufuvéla. Fyrstujárnbrautirnar litu dagsins ljós rétt fyrir aldamótin 1800. Í menningu Evrópu markar 18. öldin skilin millisíðbarokksins (rókokóstíll,Johann Sebastian Bach ogGeorg Friedrich Händel) ogklassíska tímabilsins (Jacques-Louis David,Joseph Haydn ogWolfgang Amadeus Mozart).Rómantíkin hófst undir lok aldarinnar með verkumJohann Wolfgang von Goethe ogJames Macpherson.

Ár og áratugir

[breyta |breyta frumkóða]
18. öldin:Ár ogáratugir

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=18._öldin&oldid=1670421
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp