Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Þungarokk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tony Iommi úrBlack Sabbath er þekktur fyrir að vera frumkvöðull í þungarokksgítarriffum.
Metallica er ein vinsælasta þungarokkshljómsveit heims.
Ronnie James Dio var meðal annars þekktur fyrir að geradjöflahornsmerki vinsælt.
Kiss eru þekktir fyrir skrautlega sviðsframkomu.
Iron Maiden á tónleikum.
Children of Bodom frá Finnlandi.
Dimmu Borgir frá Noregi spilasvartmálm.
Heri Joensen, gítarleikari ífæreysku þungarokksveitinniTýr.

Þungarokk, stundum kallaðbárujárnsrokk eðametal(l), er tegundrokktónlistar sem mótaðist seint á 7. áratug 20. aldar.

Söguágrip

[breyta |breyta frumkóða]

Þungarokk á rætur sínar íblúsrokki og ýmis konar öðrurokki. Þróunin, aðallegaBretlandi, hefur haft mikið með tónlistarstefnuna að segja en einnig voru áhrifamiklar hljómsveitir vestanhafs. Á 7. áratug 20. aldar voru hljómsveitir undir áhrifum frá amerískum blús ( og spiluðublúsrokk) en urðu taktfastari og mögnuðu upp hljóðfæri sín. Hljómsveitir eins ogThe Kinks,The Who,Jimi Hendrix,Steppenwolf,Blue Cheer,Cream ogThe Jeff Beck Group komu með nýjar hugmyndir og höfðu áhrif á síðari hljómsveitir. Á þeim tíma voru frumkvöðlasveitir einnig kenndar viðharðrokk. Steppenwolf kom með setninguna;heavy metal thunder, í lagi sínuBorn to be Wild árið 1968. Síðar fóru blaðamenn t.d. í tímaritinuRolling Stone að nota hugtakiðheavy metal reglulega. Á 8. áratugnum var það notað sem skammaryrði yfir hávaðasöm bönd en síðar varð það hlutlausara og átti við tiltekinn lífstíl og tónlist.[1]

Litið er þó yfirleitt á hljómsveitirnarBlack Sabbath,Led Zeppelin ogDeep Purple sem fyrstu þungarokkshljómsveitirnar. Þær byggðu tónlist sína á þéttu gítarspili með bjögunareffektum, hröðum gítarsólóum og kröftugumtrommuleik ogsöng.

Á 8. áratugnum hófu amerískar hljómsveitir að gera rokk af harðara kantinum aðgengilegra og voru með litríka sviðsframkomu. Sveitir eins ogAerosmith,Van Halen,Alice Cooper ogKiss voru áberandi í þeim geira.AC/DC (stofnuð 1973) fráÁstralíu kom með sína hörðu útgáfu af blúsrokki.

Undir lok 8. áratugarins komu fram nýjar hljómsveitir í Bretlandi. Þessi nýja bylgja (þekkt sembreska nýbylgjan í þungarokki, enska: New wave og british heavy metal/NWOBHM ) skapaði hljómsveitir eins ogJudas Priest,Iron Maiden ogMotörhead. Þessar hljómsveitir höfðu aftur á móti áhrif á nýja nálgun í vesturheimi í upphafi 9. áratugarins þar sem hraði var eitt helsta einkennið:Þrass (thrash metal) varð til með sveitum eins ogMetallica,Megadeth,Slayer ogAnthrax. Textagerðin varð öfgakenndari og þrasshljómsveitirnar vildu enn fremur aðskilja sig fráglysþungarokki sem var áberandi á sama tíma.Öfgaþungarokk fór að myndast með sveitum eins ogVenom sem tóku upp grófan stíl og ímynd.

Á 9. áratugnum náði aðgengilegra form þungarokks töluverðum vinsældum. Bönd eins og til dæmisGuns N' Roses ogEurope komust hátt á vinsældalista. Á 9. áratugnum varð einnig til ný jaðarstefna,dauðarokk með hljómsveitum eins ogDeath,Possessed ogMorbid Angel.

Árið 1991 náðisvarta plata Metallica miklum vinsældum en þá hafði sveitin farið í melódískari átt og árið 1994 komst platanFar Beyond Driven meðPantera á toppinn á Billboard listanum í Bandaríkjunum þó sú plata hafi verið talsvert þungt rokk.[2]

Vinsældir hefðbundnara þungarokks dvínuðu meðgruggi sem varð til íSeattle í byrjun 10. áratugarins. Grugg var undir áhrifum frá ýmsu þungarokki og hefur stundum verið talið tiljaðarþungarokks. Á 10. áratugnum komu einnig fram nýjar stefnur eins og jaðarþungarokk ognu metal sem blönduðu þungarokki við aðrar tónlistarstefnur.Rage Against The Machine,Korn,Deftones,Limp Bizkit ogSystem of a Down fundu áhrif írappi oghipphoppi. Ýmsar aðrar undirtegundir urðu til og meðal annars má nefnaframsækið þungarokk þar sem hljómsveitir fóru ýmsar leiðir í flóknum útsetningum tónverka ogkraftmálm (power metal), sem náði miklum vinsældum í Þýskalandi. Þar er sótt í brunn klassísks þungarokks en stíllinn er hraður og textar fantasíukenndir.

Til eru ótal afbrigði af þungarokki í dag og samsuður ýmissa stefna innan og utan þess.

Tónlistarstefnan hefur verið umdeild meðal almennings. Gagnrýnendur hafa einnig afskrifað hana sem yfirgengilegan ungæðishátt og íhaldsamir hópar hafa mótmælt textagerð sem þeir telja vera af hinu illa og hafa skaðleg áhrif á hefðbundin gildi.[3]

Undirgreinar

[breyta |breyta frumkóða]

(Listinn er ekki tæmandi)

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]

Vísindavefur - Hver er saga þungarokksins?

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinuÞungarokk.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistþungarokki.
  1. Black Sabbath: 'We hated being a heavy metal band' BBC. skoðað 9. feb. 2016
  2. Pantera Allmusic. Skoðað 28. apríl, 2016.
  3. Heavy metal Allmusic. Sótt 23. apríl 2016.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Þungarokk&oldid=1909454
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp