Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Óskarsverðlaunin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Óskarsverðlaunin
Academy Awards (enska)
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í kvikmyndagerð
LandBandaríkin
UmsjónBandaríska kvikmyndaakademían
Fyrst veitt16. maí 1929
Vefsíðaoscars.org/oscars
Verðlaunahátíðin 2008

Óskarsverðlaunin (enska:Academy Awards eða óformlegathe Oscars) eru bandarísk kvikmyndaverðlaun veittkvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa viðkvikmyndir. Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi áVesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu. Óskarsverðlaunin eru veitt afBandarísku kvikmyndaakademíunni(Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum, og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.

Árið2003 voru 5.816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum. Óskarsverðlaunin hafa verið veitt árlega frá1929.

Fyrstaframlag Íslands til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátið var myndinLand og synir eftirÁgúst Guðmundsson frá árinu 1980 en það var í 53. sinn sem hátíðin var haldin.

Verðlaunaflokkar

[breyta |breyta frumkóða]

Núverandi flokkar

[breyta |breyta frumkóða]
UpphafsárVerðlaunaflokkur
1927/28Besta kvikmynd
1927/28Besti leikstjóri
1927/28Besti leikari í aðalhlutverki
1927/28Besta leikkona í aðalhlutverki
1927/28Besta kvikmyndataka
1927/28Besta heildarútlit/listræn stjórnun
1927/28Besta handrit byggt á öðru verki
1929/30Besta hljóð
1930Besta stutta teiknimyndin
1931/32Besta leikna stuttmyndin
1934Besta klipping
1934Besta frumsamda kvikmyndatónlistin
1934Besta frumsamda lag
1936Besti leikari í aukahlutverki
1936Besta leikkona í aukahlutverki
1939Bestu tæknibrellur
1940Besta frumsamda handritið
1941Besta stutta heimildarmyndin
1943Besta heimildarmynd
1947Besta alþjóðlega kvikmyndin
1948Besta búningahönnun
1981Besta förðun og hárgreiðsla
2001Besta teiknimynd

Íslenskar tilnefningar til Óskarsverðlauna

[breyta |breyta frumkóða]

Eftirtaldir íslenskir aðilar eða myndir hafa fengið tilnefningu Bandarísku kvikmyndaakademíunnar til Óskarsverðlauna.

Íslenskir Óskarsverðlaunahafar

[breyta |breyta frumkóða]
  • Árið 2020 vann Hildur Guðnadóttir Óskar fyrir bestu frumsömdu tónlistina fyrir myndina Joker og varð fyrst Íslendinga til að vinna slík verðlaun.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Stefán Árni Pálsson (13. janúar 2020).„Hildur Guðnadóttir tilnefnd til Óskarsverðlauna“.Vísir. Sótt 13. janúar 2020.
  2. Gestsson, Davíð Kjartan (15. mars 2021).„Íslensk teiknimynd tilnefnd til Óskarsverðlauna - RÚV.is“.RÚV. Sótt 19. mars 2023.
  3. Valtýsdóttir, Elma Rut (24 janúar 2023).„Sara Gunnarsdóttir til­nefnd til Óskars­verð­launa - Vísir“.visir.is. Sótt 19. mars 2023.

Tengill

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Óskarsverðlaunin&oldid=1911687
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp