Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Ástralía

Þessi grein er gæðagrein að mati notenda Wikipediu.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Samveldið Ástralía
Commonwealth of Australia
Fáni ÁstralíuSkjaldarmerki Ástralíu
FániSkjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Advance Australia Fair
Staðsetning Ástralíu
HöfuðborgCanberra
Opinbert tungumálEnska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn
KonungurKarl 3.
LandstjóriSam Mostyn
ForsætisráðherraAnthony Albanese
SjálfstæðifráBretlandi
  Sambandsríki1. janúar 1901 
  Samþykkt Westminster-laganna9. október 1942 
  Ástralíulögin3. mars 1986 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
6. sæti
7.692.024 km²
1,79
Mannfjöldi
  Samtals (2021)
  Þéttleiki byggðar
53. sæti
25.814.400
3,4/km²
VLF (KMJ)áætl.2021
  Samtals1.416 millj.dala (18. sæti)
  Á mann54.891 dalir (17. sæti)
VÞL (2019)Hækkun 0.944 (8. sæti)
GjaldmiðillDalur (AUD)
TímabeltiUTC+8 til +10
Ekið ervinstra megin
Þjóðarlén.au
Landsnúmer+61

Ástralía eðaSamveldið Ástralía (enskaCommonwealth of Australia eðaAustralia) er land íheimsálfunniEyjaálfu, sem einnig heitir Ástralía. Ástralía er eina ríki heims sem nær yfir heiltmeginland. Landið er íBreska samveldinu og er konungurBretlands,Karl 3., jafnframt konungur Ástralíu. Ástralía skiptist í sex fylki og tvö svæði, hvert með sínahöfuðborg. Fjölmennasta borg Ástralíu erSydney.

Nafnið

[breyta |breyta frumkóða]

Alþjóðlega nafnið Ástralía er dregið aflatneska orðinuaustralis sem þýðirsuðrænt og hefur að minnsta kosti síðan á2. öld verið notað yfir óþekkta heimsálfu í suðri (terra australis incognita). BreskilandkönnuðurinnMatthew Flinders gaf meginlandinu nafniðTerra Australis en áður höfðuHollendingar nefnt þaðNova Hollandia eða Nýja-Holland.

Flinders breytti nafninu í Ástralía (Australia á ensku) á korti sem hann lauk við árið1804 þegar hann var í haldiFrakka áMáritíus. Þegar hann kom aftur heim tilEnglands árið1814 og gaf út verk sín neyddi breska flotastjórnin hann til að breyta nafninu aftur íTerra Australis. Það var svo árið1824Lachlan Macquarie, landsstjóriNýja-Suður-Wales, náði að sannfæra flotastjórnina um að breyta nafninu opinberlega í Ástralía eftir að hafa gert sér grein fyrir að það væri það nafn sem Flinders líkaði best við.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Margar mismunandi kenningar eru uppi um það hvenær og hvernig fólk kom fyrst til Ástralíu. Þær kenningar sem vilja rekja mannvist þar hvað lengst aftur halda fram aðnútímamaðurinn hafi þróast þar. Þær kenningar njóta þó ekki mikillar hylli og er talið að besta ágiskunin sé að fólk hafi komið þangað fyrst fyrir um 53.000 árum. Elstu öruggu leifar um mannvist í Ástralíu eru 50.000 ára. Lítið er vitað með vissu um sögu Ástralíu frá þeim tíma fram að komu fyrstuEvrópumanna þangað, þar semfrumbyggjarnir þróuðu aldrei með sér ritmál.Portúgalar voru fyrstir Evrópumanna til að sjá heimsálfuna svo staðfest væri en könnun hófst ekki fyrr en á17. öld. Fyrstir Evrópumanna til að setjast að í Ástralíu voruBretar sem árið1788 stofnuðufanganýlendu þar sem nú erSydney og utan um hana nýlendunaNýja-Suður-Wales sem náði yfir allt meginland Ástralíu fyrir utanVestur-Ástralíu, aukTasmaníu. Eftir því sem bresk byggð breiddist út yfir hina nýjunýlendu, voru svo nýjar nýlendur klofnar frá, til að myndaTasmanía (1825, en hún var þá kölluð Van Diemensland),Suður-Ástralía (1836),Victoria (1851) ogQueensland (1859). Vestur-Ástralía varð bresk nýlenda árið1829. Til að byrja með var þróun mjög hæg í hinum nýju nýlendum. Efnahagurinn byggðist aðallega ásauðfjárrækt og sölu afurða hennar, svo semullar. Árið1851 fannst hins vegar gull í Ástralíu og síðan þá hefur námagröftur verið meðal helstu atvinnuvega landsins. Upp frá því uxu borgirnar við suður- og austurströnd landsins hratt og um tíma varMelbourne næststærsta borg breska heimsveldisins. Árið1901 sameinuðust nýlendurnar sex í Samveldið Ástralíu, fullvalda ríki í konungssambandi við Bretland. Deilur risu hins vegar upp um hvarhöfuðborg hins nýja samveldis skyldi vera (bæði Melbourne ogSydney gerðu tilkall til titilsins) en á endanum var sú ákvörðun tekin að Melbourne yrði höfuðborg þangað tilHöfuðborgarsvæði Ástralíu yrði stofnað mitt á milli borganna tveggja. Það var gert árið1911 og Samveldisþingið flutt þangað1927.

Stjórnsýsla

[breyta |breyta frumkóða]
Þinghúsið í Canberra.

Eins og fyrr hefur verið sagt, skiptist Ástralía í sjö meginstjórnsýsluumdæmi. Hvert og eitt þeirra hefur einhverja gerð afframkvæmda-,löggjafar- ogdómsvaldi. Þau eru svo öll undirsett sambærilegum stofnunum fyrir allt samveldið. Með löggjafarvaldið fer Samveldisþingið (enska:Commonwealth Parliament), framkvæmdavaldið eins konar ríkisráð (enska:Executive Council of Australia) og dómsvaldið Hæstiréttur Ástralíu (enska:High Court of Australia). Þessar stofnanir eru allar til húsa í Canberra.

Formlega er æðsti handhafi framkvæmdavalds í Ástralíu landstjórinn (enska:Governor-General), sem er staðgengill konungs í landinu. Í raun fer hins vegarríkisstjórnin með vald hans. Meirihlutiþingsins velurforsætisráðherrann (oftast leiðtoga stærsta flokksins) sem aftur velur sér ríkisstjórn. Núverandi forsætisráðherra Ástralíu erAnthony Albanese. Landstjóri erSam Mostyn.

Samveldisþingið fer með löggjafarvald fyrir Samveldið. Það skiptist í tvær deildir, fulltrúadeild og öldungadeild. Einnig telst drottningin formlega vera á þingi. Í öldungadeildinni eiga sæti tólf fulltrúar frá hverju fylki, og tveir frá hvoru svæði (territory). Fulltrúadeildin hefur um tvöfalt fleiri eða 150þingmenn. Samkvæmtstjórnarskrá hafa báðar deildirnar sömu möguleika til að leggja framlagafrumvörp (fyrir utan þau sem snúa að ríkisfjármálum) og þurfa báðar deildir að samþykkja öll frumvörp áður en þau geta orðið aðlögum. Samkvæmt venju leggur ríkisstjórnin þó fram langflest frumvörp, yfirleitt í fulltrúadeild, en þau eru síðan samþykkt í öldungadeild.

Hæstiréttur Ástralíu er aðallegastjórnlagadómstóll, en líka efsta stigsáfrýjunardómstóll Ástralíu. Hann er skipaður sjö dómurum og forseti réttarins er Anthony Murray Gleeson.

Skipting í stjórnsýsluumdæmi

[breyta |breyta frumkóða]
Kort sem sýnir landamæri ástralskra fylkja og svæða.

Samveldið Ástralía er sett saman úr sex fylkjum, sem eru aðilar að samveldinu, og nokkrum svæðum sem eru að hluta undir stjórn samveldisins en hafa þó mismikla sjálfstjórn. Öll fylkjanna eru á meginlandinu utan eitt, sem erTasmanía. Tvö svæðanna eru á meginlandinu, en hin ekki. Fylki Ástralíu eru eftirfarandi:

Einungis tvö svæðanna eru á meginlandi Ástralíu. Þau eru:

Svæðin sem eru ekki á meginlandinu eru:

Þrjú síðastnefndu svæðin eru því sem næst óbyggð og þau þrjú byggðu utan meginlandsins mjög fámenn.

Náttúra

[breyta |breyta frumkóða]

Sökum einangrunar Ástralíu ernáttúra hennar mjög sérstök. Hún er því sem næst eini staðurinn í heiminum, þar sempokadýr lifa villt og einnig áður fyrr sá eini þar sem eucalyptus-tré vaxa. Þegar Evrópubúar komu þangað fyrst, trúðu þeir ekki eigin augum, enda náttúran mjög ólík öllu því sem þeir áttu að venjast. Þegar þeir sáubreiðnefinn (enska:platypus) fyrst, trúðu engir þeim heima fyrir, þangað til náðist að fanga eintak og senda til Evrópu. Breiðnefurinn ogmjónefurinn eru nefnilega einu tvö spendýrin í heiminum, sem verpa eggjum, og breiðnefurinn hefur þar að auki gogg og sundfit. Eftir að Evrópumenn settust þar að, hafa ýmsar þessara tegunda dáið út, þar sem þær áttu sér enga óvini í náttúrunni áður en maðurinn kom. Frægust þessara tegunda erTasmaníutígurinn. Nú er hins vegar markvisst unnið að verndun innlendrar náttúru fyrir utanaðkomandi áhrifum.

Lýðfræði

[breyta |breyta frumkóða]

Ástralir eru flestir komnir af Evrópumönnum. Að hluta til afföngum, sem sendir voru þangað, ogfangavörðum þeirra, en aðallega fólki sem fluttist þangað á 19. öld og í upphafi þeirrar tuttugustu, þá einkum í tengslum viðgullæðið. Aðeins eitt prósent Ástrala er kominn af frumbyggjum, en þeim var markvisst fækkað þegar Evrópumenn fluttust þangað. Flestir frumbyggjar búa nú í Nýja-Suður-Wales og Queensland, en á strjálbýlli svæðum landsins eru einnig sérstök verndarlönd frumbyggja. Innan marka eins slíks er hinn frægi kletturUluru (einnig þekktur sem Ayers-klettur). Sjö prósent Ástrala eru innflytjendur fráAsíu.Um þrír fjórðu Ástrala erukristnir, þar af erubiskupakirkjan ogkaþólska kirkjan með sinn fjórðunginn hvor.

Menning og fjölmiðlar

[breyta |breyta frumkóða]

Löngu áður en að Evrópumenn komu til Ástralíu var þar komin upp blómleg menningfrumbyggja en með komu Evrópumanna náði menning þeirra yfirhöndinni og hefur haldið henni síðan. Á undanförnum árum hefur þó verið lagt meira og meira upp úr menningu frumbyggja, þar sem hefðbundnar aðferðir þeirra, til dæmis viðtónlistar- ogmyndlistarsköpun eru gjörólíkar þeim evrópsku. Evrópskættuð menning er þó enn, eins og fyrr segir, sterkust í Ástralíu. Mikil gróska er þar í klassískri tónlist og hver fylkishöfuðborg hefur sína starfandisinfóníuhljómsveit. Þaðan kemur líka mikið afflytjendum dægurtónlistar og eru sumir þeirra heimsfrægir, svo sem hljómsveitirnarBee Gees ogAC/DC og einnig nýrri hljómsveitir eins ogJet ogThe Vines.Kvikmyndagerð er mikil í Ástralíu, þó hún veki sjaldan heimsathygli. Nú til dags er Ástralía þó þekktust í kvikmyndaheiminum fyrir að vera vinsæll tökustaður og að þaðan koma margir leikarar sem síðan hafa slegið í gegn íHollywood. Matarmenning Ástrala er af evrópskum rótum runnin, en hefur þróast í samræmi við loftslagið: Þar eru grillveislur (Barbie, ááströlsku) mikilvægt menningarfyrirbæri og oft eru mikil matarboð látin snúast í kring um slíkt.

Í Ástralíu eru reknar fimmsjónvarpsstöðvar sem ná til alls landsins, þar af tvær ríkisreknar (ABC ogSBS), og þrjár áskriftarsjónvarpsstöðvar sem einnig ná til alls landsins. Í öllum helstu borgum kemur útdagblað og tvö dagblöð,The Australian ogThe Australian Financial Review, koma út á landsvísu. Flestir prentmiðlar, þar á meðal öll helstu dagblöð, eru annaðhvort í eiguNews Corporation (fyrirtækisRupert Murdochs) eða fyrirtækja á vegumJohn Fairfax. Út af þessari fákeppni er Ástralía í 31. sæti á listaFréttamanna án landamæra yfirfrelsi blaðamanna.

Heimildir og Ítarefni

[breyta |breyta frumkóða]
  • Davison, Graeme, John Hirst og Stuart Macintyre (ritstj.).The Oxford Companion to Australian History. (Melbourne, Vic.: Oxford University Press, 1999).
  • Denoon, Donald o.fl.A History of Australia, New Zealand, and the Pacific. (Oxford: Blackwell, 2000).
  • Germaine, Max.Artists & Galleries of Australia. (Roseville, Vic.: Craftsman House, 1990).
  • Hughes, Robert.The Fatal Shore: The Epic of Australia's Founding. (Knopf, 1986).
  • Johnson, Vivien.Papunya Painting: Out of the Desert. (Canberra: National Museum of Australia, 2007).
  • Jupp, James.The Australian People: An Encyclopedia of the Nation, Its People, and Their Origins. (Cambridge: Cambridge University Press, 2001).
  • Macintyre, Stuart.A Concise History of Australia. (Cambridge: Cambridge University Press, 2000).
  • Powell J.M.An Historical Geography of Modern Australia: The Restive Fringe. (Cambridge: Cambridge University Press, 1988).
  • Robinson G.M., R.J. Loughran og P.J. Tranter.Australia and New Zealand: Economy, Society and Environment. (Oxford: Oxford University Press, 2000).
  • Smith, Bernard og Terry Smith.Australian painting 1788–1990. (Melbourne, Vic.: Oxford University Press, 1991).
  • Teo, Hsu-Ming og Richard White.Cultural History in Australia. (UNSW Press, 2003).

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
erlendir
Lönd íEyjaálfu
Ástralía
Melanesía
Míkrónesía
Pólýnesía
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Ástralía&oldid=1910062
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp