Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Ár

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Ár ertímaeining, sem miðast við göngujarðar kringumsólina.Hvarfár er tíminn millisólstaða og er hið náttúrulega árstíðaár.Sólár er umferðartími jarðar miðað viðfastastjörnurnar og er 365,25636 dagar, en (gregorískt)almanaksár er 365,2425 dagar aðmeðaltali.

Vegna þess að árið er um það bil fjórðungi degi lengra en sem nemur heilum dögum ársins, ertímatalið hannað þannig að eitt ár er að jafnaði 365 dagar, nema að bætt er við aukadegi fjórða hvert ár (þegar ártalið er deilanlegt með tölunni 4). Þetta fjórða ár nefnisthlaupár og bætist aukadagurinn viðfebrúarmánuð. Undantekning er síðustu ár alda en þau eru ekki hlaupár, nema þegar talan 400 gengur upp í ártalinu, t.d. var árið 2000 hlaupár, en ekki árið 1900.

Árinu er enn fremur skipt upp í tólfmánuði, sem hafa misjafna lengd; ýmist 30 eða 31 sólarhringur, nema annar mánuður ársins, febrúar, hann hefur 28 daga, en 29 þegar hlaupár er.

Uppruni orðsins

[breyta |breyta frumkóða]

Orðiðár er einkum notað sem tímaeining, 365 dagar eða 12 mánuðir, en þýddi líka að fornugóðæri ogársæld. Þá blótuðu menntil árs og friðar, eins og segir í fornum bókum. Ár er sama orð ogår ídönsku ogsænsku,year áensku og skylthornus ílatínu sem merkir ársgamall. Í eldgamallislavnesku var orðiðjara notað í merkingunnivor. Af því mætti ætla að ár sé leitt af stofni sem annars vegar merkti tími, hins vegar ársæld.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Ár&oldid=1585597
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp