Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Í beinni
Fótbolti - Enski bikarinn - FA Cup
Aston Villa
Newcastle
Podcast Hlaðvarp
TV Sjónvarp
Radio Útvarp
Fréttir
Innlent
Erlent
Veður
Hádegisfréttir
Kvöldfréttir
Kosningar 2026
Stjórnmál
Epstein-skjölin
Lögreglumál
Dómsmál
Andlát
Kompás
Senda fréttaskot
Viðskipti
Innlent
Erlent
Atvinnulíf
Neytendur
Seðlabankinn
Kauphöllin
Vistaskipti
Veitingastaðir
Fjármálin með Birni Berg
Framúrskarandi fyrirtæki
Samstarf
Fréttir af flugi
Fasteignamarkaður
Ferðaþjónusta
Sport
Staðan í deildum
Enski boltinn
Vetrarólympíuleikar 2026
Fótbolti
Bónus karla
Bónus kvenna
Olís karla
Olís kvenna
Besta karla
Besta kvenna
Körfubolti
Handbolti
NFL
Íslenski boltinn
Meistaradeildin
Golf
Lífið
Tarot dagsins
Gagnrýni
Menning
Samkvæmislífið
Bíó og sjónvarp
Ísland í dag
Tónlist
Uppskriftir
Heilsa
Eurovision
Áskorun
Samhengið með Sif
Leikjavísir
Kynlíf
Samstarf
Tíska og hönnun
Útkall
Hús og heimili
Skoðun
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Kjörnir fulltrúar
Halldór
Um skoðana­greinar á Vísi
Innherji
Fasteignir
Atvinna
Viðburðir
Menu
Calendarlaugardagur 14. febrúar 2026
  • Innskráning
  • Innlent

    Ísland í dag: Halda minningu Ölla á lofti

    Edda Sif Pálsdóttir skrifar
    Rúm fjórtán ár eru liðin síðan einn efnilegasti körfuboltamaður landsins, Örlygur Aron Sturluson, lést af slysförum aðeins átján ára gamall. Ölli, eins og hann var kallaður, vakti mikla athygli fyrir einstaka hæfileika á körfuboltavellinum og fékk ungur stórt hlutverk í liði Njarðvíkur sem varð Íslandsmeistari 1998.

    Í fyrra var gefin út heimildamynd um Ölla þar sem líf hans og afrek eru rifjuð upp og í kjölfarið stofnaður
    minningarsjóður sem ætlað er að styrkja börn úr fátækum fjölskyldum til íþróttaiðkunar. Í júní var í fyrsta skipti veitt úr sjóðnum og fékk Fjölskylduhjálp Íslands eina milljón króna. Hægt er að styrkja sjóðinn með margvíslegum hætti, til dæmis með því að kaupa myndina eða með því að hlaupa fyrir sjóðinn í Reykjavíkurmaraþoninu.

    „Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað hann var góður körfuboltamaður fyrr en ég sá myndina. Ég var alveg dolfallin og afskaplega sorgmædd yfir því að hann hafi ekki fengið fleiri tækifæri,“ segir Erna Agnarsdóttir, amma Ölla.

    „Þetta hafði mikil áhrif á mitt líf“

    Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfubolta og einn besti vinur Ölla, var staddur í Bandaríkjunum þegar slysið varð en man þennan dag eins og hann hafi verið í gær.

    „Ég var lengi að jafna mig og ástæðan fyrir því að ég fer ekki og klára námið mitt er að ég er bara ekki í stakk búinn að fara aftur út, aleinn,“ segir Logi.

    Í gegnum þessi fjórtán ár sem liðin eru segist Logi oft hafa hugsað til vinar síns og þess sem hefði getað orðið.

    „Við höfðum ákveðna drauma, um að spila saman í atvinnumennsku og töluðum oft um það. Meðan ég spilaði öll þessi ár úti í Evrópu hugsaði ég mikið til hans, sérstaklega inni á vellinum. Til dæmis þegar ég var á vítalínunni og allt var stopp, þá skaust hann inn í höfuðið á manni.“ 




    Tengdar fréttir

    Gera heimildarmynd um Örlyg Sturluson

    "Við erum rétt byrjaðir í framleiðsluferlinu,“ segir framleiðandinn Erlingur Jack Guðmundsson hjá Ogfilms um væntanlega heimildamynd um körfuboltakappann Örlyg Aron Sturluson. Stöð 2 hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn á myndinni.

    Fyrsta sýnishornið úr myndinni um Örlyg Aron

    Örlygur Aron Sturluson er af flestum talinn vera eitt mesta efni í sögu íslensks körfubolta. Hann lést af slysförum fyrir 13 árum, þá aðeins 18 ára gamall.


    •    


    Fleiri fréttir

    Sjá meira

    ×



    [8]ページ先頭

    ©2009-2026 Movatter.jp