
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.
Mánaðarlegt framlag

SOS foreldri barna á Gaza
SemSOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa og fer þeim nú fjölgandi.

SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS. Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.

SOS neyðarvinur
SOS Neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Neyðaraðgerðir sem SOS á Íslandi tekur nú þátt í að fjármagna eru íPalestínu,LíbanonÚkraínu ogSúdan. Ef þú vilt velja eitt þeirra landa til að styrkja skrifar þú nafn landsins í athugasemdadálkinn hér neðar. Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur.

SOS-mamma fann skilvirka leið fyrir tilfinningar barnanna
Rochelle starfar sem SOS-móðir í SOS barnaþorpinu í Manila á Filippseyjum. Þar annast hún börn sem e...

Abby ætlar að verða fréttakona
Abby á heima í Tanzaníu. Abby langar til að verða fréttakona þegar hún verður stór og er þegar byrju...

Bar bróður sinn á bakinu 10 km leið daglega
Rita er 14 ára og býr tímabundið í SOS barnaþorpinu í Jorpati í Nepal ásamt eldri bróður sínum, Bila...

Staurblankur hermaður vildi gera eitthvað varanlegt fyrir börnin
Einu sinni var ungur drengur í austurrísku Ölpunum sem hét Hermann Gmeiner. Móðir hans var látin og ...
85% fjárframlaga SOS-foreldra renna til barnanna
Aðeins um 15% framlaga fara í umsýslu

Tæland: Börn og starfsfólk óhult
Öll börn og starfsfólk SOS Barnaþorpanna í Tælandi eru heil á húfi eftir stóra jarðskjálftann sem reið yfir landið og nágrannalönd í gær.

Utanríkisráðherra gerði rammasamning við SOS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skrifaði á mánudaginn undir rammasamning við SOS Barnaþorpin til fjögurra ára. Framlög ráðuneytisins til SOS á þessu tímabili nema samtals 689 milljónu...

Fékkstu símtal frá SOS?
Nú eru SOS Barnaþorpin á Íslandi að hringja í fólk og óska eftir stuðningi við neyðaraðgerðir samtakanna á Gaza í Palestínu.

Andlit Afríku
Bókin „Andlit Afríku - einn á hjóli í Afríku“ er gjöf frá Hringfaranum, styrktarsjóði. Allt söluandvirði bókarinnar rennur óskert til SOS Barnaþorpanna.

SOS klútar
Klútur/buff (2 stk) merktur SOS Barnaþorpunum. Buffin eru seld tvö saman (svart og hvítt) á samtals kr. 1.000.-

Afmælisdagatal
Afmælisdagatal SOS Barnaþorpanna er tilvalið til að skrifa niður afmælisdaga fjölskyldumeðlima og er hægt að nota óháð því hvaða ár er hverju sinni.

Gjafabréf
Ertu að leita að gjöf fyrir einhvern sem vantar ekkert? Eða bara síðbúinni gjöf sem þú vilt lauma með í pakkann? Gjafabréf SOS heldur áfram að gefa og nauðstödd börn njóta góðs af. Þú ræður upphæðinni sem rennur í eitt af verkefnum okkar í þágu velferðar barna. Kaupendur gjafabréfa fá þau send samstundis í tölvupósti.

Minningarkort SOS
Hægt er að heiðra minningu látins vinar eða ættingja á fallegan hátt með því að senda peningagjöf til styrktar SOS Barnaþorpunum. Minningarkortið er sent á heimilsfang ættingja/vina hins látna og gjöfin verður skráð í nafni hans. Allar minningargjafir renna óskertar til uppbyggingarstarfs SOS Barnaþorpanna.
Nánar